Fréttir

Búseta fólks með þroskahömlun- Morgunfundur í Ráðhúsi Reykjavíkur

Rannsóknasetur í fötlunarfræðum, Landssamtökin Þroskahjálp og Velferðarsvið Reykjavíkur bjóða til morgunfundar. Boðið er til morgunfundar með tveimur bandarískum sérfræðingum um málefni fatlaðs fólks. Báðir hafa starfað í áratugi á þessum vettvangi, ekki síst í þróun búsetu og eftirliti með gæðum hennar. Þeir hafa m.a. unnið í anda dr. Wolf Wolfensbergers (1934-2011) fræðimanns og áhrifamikils frumkvöðuls í málefnum fatlaðs fólks.
Lesa meira

Hvað gerist þegar fólk nær 18 ára aldri?

Landssamtökin Þroskahjálp í samvinnu við réttindavakt velferðaráðuneytisins standa fyrir fræðslukvöldum um þær breytingar sem verða í lífi fatlaðs fólks við það að komast á fullorðinsár. Fyrstu tvö kvöldin voru í maímánuði og var þar fjallað um þær breytingar sem eiga sér stað á réttarstöðu fólks við 18 ára aldur . Í september verða þrjú fræðslukvöld til viðbótar um nám að loknum framhaldsskóla, atvinnumál og að flytja að heiman. Öll fræðslukvöldin verða að Háaleitisbraut 13. 4. hæð.
Lesa meira

Skrifstofan verður á fundi fólksins í dag

Skrifstofan á Háaleitisbrautinni verður lokuð í dag - verðum á Fundi fólksins við Norræna húsið í dag og á morgun. Hittumst þar
Lesa meira

Bréf til velferðarráðuneytis vegna skammtímavistunar á vesturlandi

Lesa meira

Umsögn um Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarpsdrög varðandi málefni fatlaðs fólks og félagsþjónustu sveitarfélaga.

Lesa meira

STOLTGANGAN 2016

STOLTGANGAN 2016 Við göngum á ólíkan hátt - en öll í sömu átt Í Stoltgöngunni göngum við saman hönd í hönd og berum höfuðið hátt. Gangan verður laugardaginn 3. september og verður lagt af stað frá Austurvelli klukkan 11:30 (hálf tólf) og gengið að Norræna Húsinu.
Lesa meira

Skýrsla íslenskra stjórnvalda til SÞ um stöðu mannréttindamála á Íslandi. Umsagnir Landssamtakanna Þroskahjálpar.

Á heimasíðu innanríkisráðuneytisins birtist 10. ágúst sl. frétt um að skýrsla um stöðu mannréttindamála á Íslandi hefði verið send til Sameinuðu þjóðanna. Skýrslan er hluti af reglubundinni allsherjarúttekt SÞ á stöðu mannréttindamála í aðildarríkjunum og verður hún tekin fyrir hjá vinnuhópi SÞ í nóvember nk.
Lesa meira

Húsnæðismál fatlaðs fólks. - Vonandi góð lög en mjög vond reglugerð.

Fyrr í sumar samþykkti Alþingi frumvarp Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, til laga um almennar íbúðir. Markmið laganna er að bæta húsnæðisöryggi efnaminni fjölskyldna og einstaklinga með auknu aðgengi að hentugu íbúðarhúsnæði til leigu og að tryggja að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda. Lögin fela í sér nýja umgjörð um fjármögnun, rekstur og úthlutun almennra íbúða sem verða að hluta fjármagnaðar með stofnframlögum úr ríkissjóði og frá sveitarfélögum.
Lesa meira

Athugasemdir Landssamtakanna Þroskahjálpar (LÞ) um drög að frumvarpi til laga um sjálfstæða mannréttindastofnun Íslands.

Lesa meira

Varðar búsetuskilyrði í lögum um almannatryggingar

Lesa meira