Málstofa um kynferðislegt ofbeldi gagnvart fötluðu fólki

Minningarsjóður Jóhanns Guðmundssonar læknis, sem er sjóður í vörslu Landssamtakanna Þroskhjálpar , Innanríkisráðuneytið og Réttindavakt velferðarráðuneytisins héldu sameiginlega málstofu um ofangreint efni 24. nóvember 2014. 

Minningarsjóðurinn var stofnaður  árið 1990 til minningar um Jóhann Guðmundsson (1933-1990) varaformann Landssamtakanna Þroskahjálpar og ötulan baráttumann fyrir réttindum fatlaðra. Markmið sjóðsins er að styrkja fatlað fólk til að sækja rétt sinn.

Stjórn sjóðsins er skipuð af stjórn Landssamtakanna Þroskahjálpar til fjögurra ára í senn. Stjórnin sér um varðveislu eigna sjóðsins og ákveður úthlutun úr honum.

Markmið málstofunnar var að fjalla um aðgerðir til að tryggja fötluðu fólki jafnan aðgang að réttarkerfinu m.a í kynferðisbrotum  

Hér er hægt að nálgast glærur frá málstofunni.

  1. Hvað er vitað um ofbeldi gagnvart fötluðu fólki?
    Rannveig Traustadóttir, prófessor - GLÆRUR
     
  2. Hvernig hafa aðrar Norðurlandaþjóðir fullgilt 13. grein samnings S.Þ.um réttindi fatlaðs fólks 
    María Rún Bjarnadóttir, innanríkisráðuneytinu GLÆRUR
     
  3. Hvað þarf að hafa í huga við þegar laga þarf málsmeðferð að þörfum fatlaðs fólks?
    Hvernig þarf nálgun lögreglumanna að vera og hver er aðkoma réttindagæslumanna? 
    Sigrún Jensey, réttindagæslumaður - GLÆRUR
    Elís Kjartansson, lögreglufulltrúi - GLÆRUR
     
  4. Sjónarhorn ríkissaksóknaraembættisins
    Kolbrún Benediktsdóttir,saksóknari hjá Ríkissaksóknara
     
  5. Aðkoma, hlutverk og þekking Stígamóta á kynferðisbrotum gagnvart fötluðu fólki. 
    Helga Baldvins og Bjargardóttir, frá stígamótum - GLÆRUR