Að aðstoða seinfæra foreldra

Að aðstoða seinfæra foreldra er handbók eftir Sigríði Elínu Leifsdóttur, þroskaþjálfa og Maríu Hreiðarsdóttur, seinfæra móður og rithöfund.

Handbókin er gefin út af Landssamtökunum Þroskahjálp til að styðja við fagfólk sem starfar með seinfærum foreldrum.

Smelltu hér til að kaupa handbókina: prentaða útgáfu, eða rafbók (PDF)

Mynd af konu sem krýpur á gólfinu. Hún er með báða lófa á hjartastað. Á gólfinu er smábarn og leikföng allt í kring. Myndin er friðsæl. Á bakvið konuna, í skugga, stendur vingjarnlegt fólk.

 

Í handbókinni er einnig að finna kafla með ráðum og óskum frá hópi seinfærra foreldra sem voru til stuðnings og yfirlestrar.

Í 23. grein samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er fjallað um virðingu fyrir heimilis- og fjölskyldulífi. Þar er m.a. fjallað um rétt fatlaðs fólks til að stofna fjölskyldu og fá fræðslu og stuðning vegna fjölskyldumála og barna-uppeldis þar sem áhersla er á að fatlað fólki eigi sama rétt og aðrir til að halda frjósemi sinni, giftast, stofna fjölskyldu og eiga börn. Þessi stuðningur er bundinn í lög.