
Daðahús á Flúðum, við Akurgerði 10,
er heilsárshús Þroskahjálpar
og er útbúið sérstaklega fyrir fatlað fólk.
Í Daðahúsi eru tvö tímabil: vetur og sumar
Vetrartímabilið er frá október út apríl
Á veturna er húsið opið öllum umsækjendum, og hægt að bóka allt árið.
Til að bóka vetrardvöl, hafið samband við skrifstofu í síma 5889390
eða sendið tölvupóst á dadahus@throskahjalp.is
Sumartímabilið er frá maí til október
Á sumrin er úthlutun eftir umsóknum, sem eru auglýstar sérstaklega í mars eða apríl á hverju ári.
Fatlað fólk og aðstandendur þeirra njóta forgangs.
Þroskahjálp velur úr umsóknum og skoðar hvaða einstaklingar hafa áður fengið úthlutun á síðustu árum.
Daðahús á Flúðum er orlofshús Þroskahjálpar
Daðahús er einbýlishús sem stendur við Akurgerði 10, Flúðum.
Húsið er útbúið sérstaklega fyrir fatlað fólk.
Hleðslustöð er fyrir rafbíla, internet og Apple TV.
Aðgengi og aðbúnaður er til fyrirmyndar.
Í húsinu eru 5 herbergi:
— 4 svefnherbergi
— baðherbergi, vel útbúið fyrir fatlað fólk
— gestasalerni með sturtu
Svefnpláss fyrir 7 til 10 manns:
— 6 rúm
— 1 sjúkrarúm
— lausar dýnur
Að auki:
— Lyftari
— Heitur pottur, með aðgengi fyrir lyftara
— Sturtustóll
— Sturtubekkur
Vetrarbókanir
Vetrartímabil fyrir Daðahús er frá október út apríl.
Til að bóka Daðahús hafðu samband á dadahus@throskahjalp.is eða í síma 588 9390.
- Á veturna er lágmarksdvöl 2 nætur.
Verð fyrir fyrstu tvær næturnar:
25.000 kr.
- Hver sólarhringur eftir það:
9.000 kr.
- Vika:
60.000 kr.
Síðast uppfært 25.3.2026
Sumarúthlutun
Sumartímabilið í Daðahúsi er frá maí til október.
Opnað fyrir umsóknir í mars/apríl.