
Laugardaginn 11. október kl. 13:00–16:00 býður Þroskahjálp til málþings undir yfirskriftinni „Uppfærsla: betri þjónusta fyrir fatlað fólk“.
Á þinginu verður fjallað um hvernig tryggja megi að þjónusta við fatlað fólk styðji betur við mannréttindi og þátttöku í samfélaginu. Rætt verður um hlutverk og verkefni Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, starf geðheilsuteymis taugaþroskaraskana og mikilvægi sjálfsákvörðunaréttar og studdrar ákvörðunartöku. Dagskrá er í formi erinda og samtals milli þjónustuveitenda, eftirlitsaðila, fræðafólks og fólks með þroskahömlun.
Málþingið er haldið á Hótel Reykjavík Grand og byrjar kl.13 í salnum Háteigur sem er á 4.hæð.
Rýmið er aðgengilegt, og á staðnum verða bæði táknmálstúlkur
og teiknari sem mun túlka efni málþingsins.
Boðið verður upp á veitingar.
Við biðjum gesti að skrá sig á málþingið, svo við vitum hvað við eigum að panta mikið af veitingum!
Skráning á málþingið er hér
Dagskrá
Uppfærsla
Betri þjónustu fyrir fatlað fólk
Facebook viðburður
Málþingið byrjar kl. 13
Málþingsstjórar:
Fabiana Morais og Ævar Þór Benediktsson
13:00 Setning
Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar
13.10 – 13.30: Opnunarerindi
Þarfir og réttindi þjónustuþega í forgrunni:
Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Gæða og eftirlitsstofnunar velferðarmála
13.30 – 14.00: Sófaspjall 1
Eiríkur Smith, Herdís Gunnarsdóttir og Alma Ýr Ingólfsdóttir
Spyrill: Hekla Björk Hólmarsdóttir, aðjúnkt við HÍ
— Stutt hlé í 10 mínútur
14.10 – 14.30: Erindi
Áskoranir í verkefnum geðheilsuteymis taugaþroskaraskana
Bjargey Una Hinriksdóttir, teymisstjóri
14:30 – 15:00: Sófaspjall 2
Dagur Bjarnason, Hanna Kristín Sigurðardóttir og Gerður Aagot Árnadóttir
Spyrill: Atli Már Haraldsson, talsmaður fatlaðs fólks
— Stutt hlé í 10 mínútur
15.10 – 16:00: Sófaspjall 3
Árni Viðar Þórarinsson, Laufey E. Löve, Guðrún V. Stefánsdóttir og Friðrik Sigurðsson
Spyrill: Óli Snævar, talsmaður fatlaðs fólks
16:00 – 17:00 Léttar veitingar
Skráning á málþingið er hér
Hvar er málþingið?
Málþingið verður á Hótel Reykjavík Grand sem er við Sigtún 28 í Reykjavík. Salurinn heitir Háteigur og er á 4. hæð.
Hér er kort af staðsetningunni:
Aðgengi
Gott aðgengi er fyrir fólk með hreyfihömlun á Hótel Reykjavík Grand.
Það verður táknmálstúlkur bæði á fundinum og í streyminu.
Ef þú lendir í vandræðum getur þú hringt í Þroskahjálp í síma 588 9390.