Skilmálar

1. Almenn ákvæði

Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru á vefnum https://www.throskahjalp.is.is eigu Þroskahjálp - Landssamtök, kt. 521176-0409, Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík – í skilmálum þessum nefnt Þroskahjálp. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Þroskahjálpar annars vegar og kaupanda vöru hins vegar.

„Söluaðili“ er fyrirtæki sem býður vöru eða þjónustu til sölu á www.throskahjalp.is

„Kaupandi“ er einstaklingur sem er aðili samnings en stundar ekki viðskipti eða aðra athafnastarfsemi, þ.e. einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup.

Verð á vefsíðunni eru með virðisaukaskatti samkvæmt fyrirliggjandi gögnum og upplýsingum frá söluaðila og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur.

2. Persónuupplý­singar

Þroskahjálp meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Persónuupplýsingar sem berast Þroskahjálp eru skráðar rafrænt í gagnagrunn Þroskahjálpar og aðeins umsjónaraðili kerfisins hefur aðgang að þeim. Persónuupplýsingar eru ekki veittar þriðja aðila.

Við kaup á vöru eða þjónustu veitir kaupandi Þroskahjálp samþykki sitt til að safna og vinna úr persónuupplýsingum úr gagnagrunni fyrirtækisins. Úrvinnsla gagna fer fram svo lengi sem kaupandi lýsir ekki andstöðu sinni við meðferð upplýsinganna. Ef kaupandi óskar eftir að koma athugasemdum um meðhöndlun persónuupplýsinga á framfæri eða óskar eftir að persónuupplýsingum sínum verði eytt úr grunninum, skal athugasemdum komið til Þroskahjálpar í tölvupósti á throskahjalp@throskahjalp.is eða bréflega á heimilisfang Þroskahjálpar, Háaleitisbraut 13 heimilisfang, 108 Reykjavík. Upplýsingum um kaupanda verður þá eytt úr gagnagrunninum og kaupandi upplýstur um það sérstaklega.

Þroskahjálp áskilur sér rétt til að nota persónuupplýsingar til að senda viðskiptavinum markpósta með tölvupósti og/eða sms-skeytum, er það gert í þeim tilgangi að veita viðskiptavinum sem besta þjónustu.

3. Frágangur viðskipta

Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann þekki gildandi skilmála Þroskahjálpar.

Hver kaup eru bindandi fyrir kaupendur samkvæmt skilmálum og skilyrðum Þroskahjálpar.