23.11.2015
Formaður og framkvæmdastjóri samtakanna skrifa grein í Kjarnann og er umfjöllunarefni þeirra jafnræðisreglan. Jafnræðisreglan er rauði þráðurinn í öllum mannréttindasamningum sem Íslendingar hafa skuldbundið sig til að virða og framfylgja gagnvart öllu því fólki sem býr á Íslandi.
Jafnræðisreglan er einnig grundvallarregla í íslensku stjórnarskránni og í íslenskum lögum.
Kjarninn í jafnræðisreglunni er skýr og einfaldur: Jöfn tækifæri alls fólks.
Lesa meira
18.11.2015
Hér á heimasíðunni munum við smátt og smátt setja inn útskýringar á ályktunum sem samþykktar voru á landsþingi samtakanna í október sl.
Útskýringar er að finna hér
Lesa meira
18.11.2015
Stjórnsýsla í málefnum fatlaðs fólks.
Landsþingið telur vera mikið áhyggjuefni hversu mörg dæmi eru um að sveitarfélög fari ekki að réttum málsmeðferðarreglum sem mælt er fyrir um í lögum og reglum, s.s. í reglugerð um þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum, við meðferð og töku ákvarðana sem varða þjónustu við fatlaða einstaklinga. Landsþing Landssamtakanna Þroskahjálpar krefst þess að sveitarfélög virði stjórnsýslureglur í málum er varða þjónustu við fatlað fólk og réttindi þess. Þessum reglum er ætlað að stuðla að því að stjórnvöld vandi meðferð mála og undirbúning og töku ákvarðana. Það er sérstaklega mikilvægt þegar um ríka hagsmuni fólks er að ræða, eins og mjög oft er raunin í málefnum fatlaðs fólks.
Lesa meira
17.11.2015
Á stjórnarfundir samtakanna sem haldinn var 14. nóvember sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt:
Aukin framlög í fjárlögum til þjónustu við fatlað fólk.
Stjórn Landssamtakanna Þroskahjálpar tekur undir áskorun landshlutasamtaka sveitarfélaga frá 9. nóvember sl. þar sem skorað er á ráðherra og alþingismenn að tryggja að við gerð fjárlaga fyrir árið 2016 verði aukin framlög til þjónustu við fatlað fólk og til fleiri þar tilgreindra málaflokka sem eru mikilvægir fyrir byggðaþróun til framtíðar
Lesa meira
10.11.2015
Stjórn Þroskahjálpar á Suðurlandi ræddi á fundi 9. nóvember fréttir af sumardvalarheimili fyrir fatlaða sem rekið var skammt utan við Selfoss. Af því tilefni vill stjórnin taka undir og gera að sínum kröfu formanns Landssamtakanna Þroskahjálp um að stjórnvöld sinni skyldu sinni til eftirlits með þeim einkaaðilum og stofnunum sem koma að umönnun fatlaðra.
Lesa meira
05.11.2015
Undanfarna daga hefur í fjölmiðlum verið fjallað um kynferðislegt ofbeldi gegn fötluðum konum, hvaða skyldur hvíla á stjórnvöldum til að vernda þær gegn slíku ofbeldi og hvaða eftirliti stjórnvöldum ber að halda uppi í því skyni.
Þetta er afar mikilvæg og mjög tímabær umfjöllun og umræða og þó að tilefni þess að hún er nú svo mikil í fjölmiðlum og samfélaginu öllu nú séu mál sem hljóta að vekja mikinn óhug er það von Landssamtakanna Þroskahjálpar að stjórnvöld bregðist nú tafarlaust við og geri það sem gera þarf til að tryggja fötluðum konum nægilega vernd gegn ofbeldi með lögum, í stjórnsýsluframkvæmd og réttarkerfinu öllu.
Lesa meira
04.11.2015
Landssamtökin Þroskahjálp og Geðhjálp sendu meðfylgjandi bréf til stjórnvalda um að tryggja að fólk með þroskahömlun og geðrænar raskanir njóti réttinda og verndar í réttarkerfinu til jafns við aðra og í samræmi við mannréttindaskuldbindingar.
Lesa meira
04.11.2015
Hverja má nauðungarvista?
Hverjir geta beðið um nauðungarvistun?
Hvað með lögræðissviptingu?
Hver eru réttindi hins svipta?
Standast ný lögræðislög yfirhöfuð alþjóðlega mannréttindasáttmála?
Lesa meira
02.11.2015
Á landsþingi samtakanna í október sl. var ályktað sérstaklega um nauðsyn þess að stjórnvöld hugi að því hvernig tryggja megi að fatlað fólk njóti verndar í réttarkerfinu, til jafns við aðra og grípi til nauðsynlegra aðgerða í því skyni. Frásagnir sem komið hafa í fjölmiðlum að undanförnu sýna mjög vel nauðsyn þessa.
Lesa meira
02.11.2015
Við munum á næstunni setja inn reglulega útskýringar á auðlesnu máli á samþykktum landsþings.
Ályktanir landsþings Landssamtakanna Þroskahjálpar 2015.
Endurskoðun laga um málefni fatlaðs fólks og laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Landsþing Landssamtakanna Þroskahjálpar leggur mikla áherslu á að við endurskoðun laga um málefni fatlaðs fólks og félagsþjónustu sveitarfélaga verði tryggt að réttindi fatlaðs fólks njóti skýrrar og góðrar verndar. Landsþingið leggur áherslu á að þau réttindi og skyldur sem samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks kveður á um, verði án frekari dráttar, innleidd í íslensk lög, reglur og stjórnsýsluframkvæmd með afdráttarlausum hætti. Landsþingið telur að réttindi fatlaðs fólks og vernd þess fyrir mismunun af ýmsu tagi verði best tryggð með sérlögum sem verði í fullu samræmi við samning Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Lesa meira