Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingsályktunar um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2024 – 2028, 860 mál

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingsályktunar um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2024 – 2028, 860 mál

     30. mars 2023

Landssamtökin Þroskahjálp þakka fyrir að hafa fengið þingsályktunartillöguna til umsagnar og vilja koma eftirfarandi á framfæri varðandi hana.

Íslenska ríkið fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans og tryggja fötluðu fólki öll þau réttindi og alla þá vernd sem mælt er fyrir um í samningnum.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að samningurinn verði lögfestur og þá er hafin sérstök landsáætlun um innleiðingu hans undir stjórn félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins.

4. gr. samningsins hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingar. Þar segir m.a.:

Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að efla og tryggja að fullu öll mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk án mismununar af nokkru tagi á grundvelli fötlunar.

 Aðildarríkin skuldbinda sig í þessu skyni til:

a) að samþykkja alla viðeigandi löggjöf og ráðstafanir á sviði stjórnsýslu og aðrar ráðstafanir til að tryggja þau réttindi sem viðurkennd eru með samningi þessum,

b) að gera allar viðeigandi ráðstafanir, þar á meðal með lagasetningu, til þess að gildandi lögum, reglum, venjum og starfsháttum, sem fela í sér mismunun gagnvart fötluðu fólki, verði breytt eða þau afnumin,

c) að taka mið af vernd og framgangi mannréttinda fatlaðs fólks við alla stefnumótun og áætlanagerð, ... . (Undirstr. Þroskahj.).

Í 5. gr. samningsins er kveðið á um bann við mismunun á grundvelli fötlunar og skyldu ríkja til að tryggja fötluðu fólki viðeigandi aðlögun. Greinin hefur yfirskriftina Jafnrétti og bann við mismunun og hljóðar svo:

  1. Aðildarríkin viðurkenna að allar manneskjur eru jafnar fyrir og samkvæmt lögum og eiga rétt á jafnri vernd og jöfnum ávinningi af lögum án nokkurra mismununar.
  2. Aðildarríkin skulu banna hvers kyns mismunun á grundvelli fötlunar og tryggja fötluðu fólki jafna og árangursríka réttarvernd gegn mismunun af hvaða ástæðu sem er.

 

 

  1. Aðildarríkin skulu, í því skyni að efla jafnrétti og uppræta mismunun, gera allar viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að fötluðu fólki standi viðeigandi aðlögun til boða.
  2. Eigi ber að líta á sértækar aðgerðir, sem eru nauðsynlegar til þess að flýta fyrir eða ná fram raunverulegu jafnrétti fyrir fatlað fólk, sem mismunun í skilningi samnings þessa. (Undirstr. og feitletr. Þroskahj.).

Í 2. gr. samningsins er viðeigandi aðlögun skilgreind svo:

„Viðeigandi aðlögun“ merkir nauðsynlegar og viðeigandi breytingar og lagfæringar, sem eru ekki umfram það sem eðlilegt má teljast eða of íþyngjandi, þar sem þeirra er þörf í sérstöku tilviki, til þess að tryggt sé að fatlað fólk fái notið eða geti nýtt sér, til jafns við aðra, öll mannréttindi og grundvallarfrelsi.

Landssamtökin Þroskahjálp leggja áherslu á að við alla stefnumótun sem lýtur að þjónustu við aldraða verði sérstaklega litið til þeirra skyldna sem hvíla á íslenska ríkinu samkvæmt samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks hvað varðar réttindi aldraðs fatlaðs fólks og þá þjónustu sem það á rétt á samkvæmt því. Samtökin hvetja því eindregið til að farið verði sérstaklega yfir þingsályktunartillöguna með tilliti til þess að tryggja að hún taki örugglega tillit til þeirra skyldna sem hvíla á íslenska ríkinu hvað varðar þjónustu við aldrað fatlað fólk. Við þá yfirferð telja samtökin mjög mikilvægt að stuðst verði við skýrslu óháðs sérfræðings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (Special Rapporteur on the Rights of Persons with Disabilities) frá 2019 varðandi réttindi aldraðs fatlaðs fólks.

Framan á skýrslunni er þessi samantekt um efni hennar:

In the present report, the Special Rapporteur on the rights of persons with disabilities, Catalina DevandasAguilar, examines the situation of older persons with disabilities, and provides guidance to States on how to promote, protect and ensure their human rights and fundamental freedoms, paying particular attention to the intersection between ageing and disability.

Skýrsluna má nálgast á þessum hlekk:

https://undocs.org/en/A/74/186

Mannréttindaskrifstofa Íslands hefur gefið út ritið Réttarstaða eldra fólks (ritið má nálgast á hlekkjum að neðan).

https://www.humanrights.is/is/verkefni/utgafa-1/utgafa/rettarstada-eldra-folks

https://www.humanrights.is/static/files/Utgafa/rettarstada-aldradra-apri-769-l-2022_.pdf

Ritið var birt á heimasíðu Mannréttindaskrifstofu 21. febrúar 2023. Á bls. 44 – 45 í ritinu segir:

Í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sést glögglega sú þróun sem orðið hefur í þessum málum. Þar er sérstök áhersla lögð á að aðgengi sé forsenda þess að fötluðum einstaklingum sé kleift að verða virkir þátttakendur í samfélaginu og er ljóst að það sama gildir um aldraða einstaklinga hvort sem þeir stríða við fötlun eða eiga undir högg að sækja einungis vegna aldurs. Íslenska ríkið fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans og tryggja fötluðu fólki öll þau réttindi og vernd sem mælt er fyrir um í samningnum. Þann 1. júlí 2022 ákvað ríkisstjórnin að hrinda af stað sérstakri landsáætlun um innleiðingu hans undir stjórn félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Við innleiðingu samningsins mun tvímælalaust koma til álita skörun milli aldurs og fötlunar. Í almennum athugasemdum og tillögum Nefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks til aðildarríkja, hafa ýmis álitaefni tengd aldri verið skoðuð. Til að mynda hefur nefndin á það bent að hækkandi aldur eykur líkur á fjölþættri mismunun og skörun réttinda. Í almennri athugsemd sinni nr. 6 (2018), um jafnrétti og bann við mismunun, lagði Nefndin til að að ríki viðhafi sérstök úrræði fyrir fatlað eldra fólk. Í almennri athugasemd Nefndarinnar nr. 7 (2018), um þátttöku fatlaðs fólks, þar á meðal fatlaðra barna, í gegnum sín aðildarfélög, í innleiðingu á og eftirliti með Samningnum, kvað nefndin á um skyldu ríkja til að hafa samráð við hópa, þar á meðal eldra fólk, sem eru útsettir fyrir fjölþætta mismunun. Þannig getur Samningurinn verið öflugt tæki til að takast á við skörun milli öldrunar og fötlunar, út frá sjónarhóli réttinda. Eldra fólk sem tekst á við hindranir sem koma í veg fyrir að þau fái notið réttinda sinna, vegna aldurs eða fötlunar, njóta verndar Samningsins óháð því hvort fötlunin hefur orðið til snemma eða seint á lífsleiðinni. Fatlað eldra fólk nýtur því skilyrðislausrar verndar samningsins.

Nánar er kveðið á um skörun milli aldurs og fötlunar í skýrslu óháðs sérfræðings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (Special Rapporteur on the Rights of Persons with Disabilities)127 frá 2019 varðandi réttindi aldraðs fatlaðs fólks. Í samantekt um efni skýrslunnar segir að í henni skoði óháði sérfræðingurinn stöðu fatlaðs eldra fólks og leiðbeini ríkjum með hvernig megi vinna að því að tryggja vernd, framgang og framfylgni mannréttinda þeirra og grundvallarréttindi, með sérstakri áherslu á skörun aldurs og mannréttinda.

Auk þess að kveða á um starfslokaaldur eins og nefnt var hér á undan, má telja líklegt að skörun milli aldurs og fötlunar muni koma til álita í ljósi útvíkkunar gildissviðs laga nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, sjá nánari umfjöllun í kafla 10.3.2.

 

Landssamtökin Þroskahjálp lýsa vilja og áhuga til samráðs við hlutaðeigandi stjórnvöld varðandi réttindi aldraðs fatlaðs fólks og þjónustu við það og vísa í því sambandi til samráðsskyldu stjórnvalda sem er áréttuð sérstaklega í 3. mgr. 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks og hljóðar svo:

Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.

 

Virðingarfyllst.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

 

Nálgast má þingsályktunartillöguna sem umsögnin á við hér.