Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031, 577. Mál

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031, 577. Mál

 

4. maí 2026

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og / eða skyldar fatlanir og einhverft fólk og öll fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína og starfsemi á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum, sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að framfylgja, sem og á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.

Íslenska ríkið fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Samningurinn var lögfestur með lögum nr. 80/2025 og þá er í gangi af hálfu ríkisins sérstök landsáætlun um innleiðingu hans.

4. gr. samningsins hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingar. Þar segir:

1.      Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að efla og tryggja að fullu öll mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk án mismununar af nokkru tagi á grundvelli fötlunar.
Aðildarríkin skuldbinda sig í þessu skyni til:
         a)          að samþykkja alla viðeigandi löggjöf og ráðstafanir á sviði stjórnsýslu og aðrar ráðstafanir til að tryggja þau réttindi sem viðurkennd eru með samningi þessum,
         b)          að gera allar viðeigandi ráðstafanir, þar á meðal með lagasetningu, til þess að gildandi lögum, reglum, venjum og starfsháttum, sem fela í sér mismunun gagnvart fötluðu fólki, verði breytt eða þau afnumin,
         c)          að taka mið af vernd og framgangi mannréttinda fatlaðs fólks við alla stefnumótun og áætlanagerð, ...

Ekki þarf að hafa mörg orð um að fullnægjandi fjárveitingar ráða úrslitum um hvort fatlað fólk fái raunhæf tækifæri til að njóta til jafns við aðra margvíslegra afar mikilvægra réttinda, sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til tryggja því með því að fullgilda samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks og lögfesta hann með lögum nr. 88/2025. Í þessu smabandi má m.a. nefna réttindi, sem kveðið er á um í eftirfarandi greinum samningsins: 8. gr. (Vitundarvakning), 9. gr. (Aðgengi), 13. gr. (Aðgangur að réttinum), 19. gr. (Að lifa sjálfstæðu lífi og án aðgreiningar í samfélaginu), 20. gr. (Ferlimál einstaklinga), 21. gr. (Tjáningar- og skoðanafrelsi og aðgangur að upplýsingum), 24. gr. (Menntun), 25. gr. (Heilbrigði), 26. gr. (Hæfing og endurhæfing), 27. gr. (Vinna og starf), 28. gr. (Viðunandi lífskjör og félagsleg vernd), 30. gr. (Þátttaka í menningarlífi, tómstunda-, frístunda- og íþróttastarfi), 31. gr. (Tölfræðilegar upplýsingar og gagnasöfnun) og 33. gr. (Framkvæmd og eftirlit innan lands).

4. gr. samningsins, sbr. lög nr. 80/2025,hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingar. 3. mgr. 4. gr. hljóðar svo:

Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.

Ekki þarf heldur að fjölyrða um að skyldur íslenska ríkisins, sem vísað er til hér að framan, til að taka mið af vernd og framgangi mannréttinda fatlaðs fólks við alla stefnumótun og áætlanagerð og til að  hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd, eru ekki aðeins þjóðréttarlegar skyldur ríkisins heldur skyldur þess samkvæmt lögum nr. 88/2025.

Með vísan til þess, sem að framan er rakið, skora Landssamtökin Þroskahjálp á fjárlaganefnd að fá upplýsingar frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu um hvernig ráðuneytið stóð að því að uppfylla ofangreindar skyldur, sem Alþingi lagði fyrir það að gera 12. nóvember 2025 með samþykkt laga nr. 80/2025, við undirbúning og gerð þeirrar þingsályktunartillögu sem hér er til  umsagnar.

Landssamtökin Þroskahjálp óska eftir að fá að koma á fund fjárlaganefndar til að gera grein fyrir áherslum sínum varðandi það mál sem hér er til umfjöllunar.

 

Virðingarfyllst.

Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar

Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar

Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér