Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingsályktunar um almannaheillasjóð

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingsályktunar um almannaheillasjóð, 368. mál

 

17. mars 2026

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og / eða skyldar fatlanir og einhverft fólk og öll fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína og starfsemi á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum, sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að framfylgja, sem og á heimsmarkmiðum SÞ, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.

Landssamtökin Þroskahjálp lýsa eindregnum stuðningi við þingsályktunartillöguna og skora á efnahags- og viðskiptanefnd og Alþingi að samþykkja hana.

 

Virðingarfyllst,

Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar

Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar

 

Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér.