Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingályktunar um eflingu barnamenningar 2024 – 2028

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingályktunar um eflingu barnamenningar 2024 – 2028                                                                                                                

      2. febrúar 2023

 

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, Barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur undirgengist, sem og heimsmarkmiðum SÞ.

Landssamtökin Þroskahjálp fagna áformum um aðgerðaráætlun um eflingu barnamenningar fyrir árin 2024-2028.

Mjög mikilvægt er að öll börn og ungmenni fái raunhæf tækifæri og án mismununar, s.s. á grundvelli fötlkunar, til að vera þátttakendur í íslensku menningarlífi og fái að kynnast ólíkum listformum og fræðslu og taki þátt í listsköpun á sínum eigin forsendum.

Í tillögunni kemur að leggja eigi áherslu á samþættingu barnamenningar við starfsemi opinberra menningarstofnana og miðstöð listgreina við almennt skólastarf. Með því eru auknar líkur á að öll börn óháð efnahag, félagslegri stöðu, uppruna eða fötlun fái að kynnast fjölbreyttum listgreinum

Nauðsynlegt er að gera viðeigandi og fullnægjandi ráðstafanir til að fötluð börn og ungmenni verði þátttakendur í barnamenningarverkefninu List fyrir alla.

Íslenska ríkið fullgilti samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að samningurinn verði lögfestur og þá er nýlega hafin af hálfu ríkisins framkvæmd sérstakrar landsáætlunar um innleiðingu hans.

Meginmarkmið samningsins er að tryggja fötluðu fólki mannréttindi og raunhæf tækifæri til virkrar þátttöku á öllum sviðum samfélagsins, til jafns við aðra og án aðgreiningar.

4. gr. samningsins hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingar. Þar segir:


     1.      Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að efla og tryggja að fullu öll mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk án mismununar af nokkru tagi á grundvelli fötlunar.
        Aðildarríkin skuldbinda sig í þessu skyni til:

         a)          að samþykkja alla viðeigandi löggjöf og ráðstafanir á sviði stjórnsýslu og aðrar ráðstafanir til að tryggja þau réttindi sem viðurkennd eru með samningi þessum,
         b)          að gera allar viðeigandi ráðstafanir, þar á meðal með lagasetningu, til þess að gildandi lögum, reglum, venjum og starfsháttum, sem fela í sér mismunun gagnvart fötluðu fólki, verði breytt eða þau afnumin,
         c)          að taka mið af vernd og framgangi mannréttinda fatlaðs fólks við alla stefnumótun og áætlanagerð,

(Feitletr. Þoskahj.)

Í 7. gr. samningsins, sem hefur yfirskriftina Fötluð börn, segir:


     1.      Aðildarríkin skulu gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess að tryggja að fötluð börn fái notið allra mannréttinda og grundvallarfrelsis til fulls og jafns við önnur börn. 
     2.      Í öllum aðgerðum, sem snerta fötluð börn, skal fyrst og fremst hafa það að leiðarljósi sem er viðkomandi barni fyrir bestu. 
     3.      Aðildarríkin skulu tryggja fötluðum börnum rétt til þess að láta skoðanir sínar óhindrað í ljós um öll málefni er þau varða, jafnframt því að sjónarmiðum þeirra sé gefið tilhlýðilegt vægi í samræmi við aldur þeirra og þroska og til jafns við önnur börn og veita þeim aðstoð þar sem tekið er viðeigandi tillit til fötlunar þeirra og aldurs til þess að sá réttur megi verða að veruleika.

5. gr. samningsins hefur yfirskiftina Jafnrétti og bann við mismunun og hljóðar svo:


     1.      Aðildarríkin viðurkenna að allar manneskjur eru jafnar fyrir og samkvæmt lögum og eiga rétt á jafnri vernd og jöfnum ávinningi af lögum án nokkurra mismununar.
     2.      Aðildarríkin skulu banna hvers kyns mismunun á grundvelli fötlunar og tryggja fötluðu fólki jafna og árangursríka réttarvernd gegn mismunun af hvaða ástæðu sem er. 
     3.      Aðildarríkin skulu, í því skyni að efla jafnrétti og uppræta mismunun, gera allar viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að fötluðu fólki standi viðeigandi aðlögun til boða. 
     4.      Eigi ber að líta á sértækar aðgerðir, sem eru nauðsynlegar til þess að flýta fyrir eða ná fram raunverulegu jafnrétti fyrir fatlað fólk, sem mismunun í skilningi samnings þessa. 

(Feitletr. Þroskahj.)

 

30. gr. samningsins hefur yfirskriftina Þátttaka í menningarlífi, tómstunda-, frístunda- og íþróttastarfi. Þar segir:

 

     1.      Aðildarríkin viðurkenna rétt fatlaðs fólks til þess að taka þátt í menningarlífi til jafns við aðra og skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir til þess að tryggja að fatlað fólk:
         a)          njóti aðgengis að menningarefni í aðgengilegu formi,
         b)          njóti aðgengis að sjónvarpsefni, kvikmyndum, leikhúsi og öðrum menningarviðburðum í aðgengilegu formi,
         c)          njóti aðgengis að stöðum þar sem flutningur menningarefnis eða þjónusta á sviði menningar fer fram, t.d. leikhúsum, söfnum, kvikmyndahúsum, bókasöfnum og ferðaþjónustu og njóti, eftir því sem við verður komið, aðgengis að minnisvörðum og stöðum sem hafa þjóðmenningarlegt gildi.
     2.      Aðildarríkin skulu gera viðeigandi ráðstafanir til þess að fatlað fólk fái tækifæri til að þróa og nota sköpunargáfu sína og listræna og vitsmunalega getu, ekki einvörðungu í eigin þágu, heldur einnig í því skyni að auðga samfélagið.
     3.      Aðildarríkin skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir, í samræmi við alþjóðalög, til þess að tryggja að lög, sem vernda hugverkarétt, feli ekki í sér mismunun gagnvart fötluðu fólki eða óréttmætar hindranir við aðgang þess að menningarefni.
     4.      Fatlað fólk skal eiga rétt, til jafns við aðra, á viðurkenningu og stuðningi við sérstaka menningar- og tungumálssjálfsmynd sína, þar á meðal táknmál og menningu heyrnarlauss og heyrnarskerts fólks. …

Landssamtökin Þroskahjálp hvetja forsætisráðuneytið til að skoða sérstaklega hvort sú aðgerðaáætlun, sem hér er til umsagnar og þær aðgerðir og áherslur sem þar er að finna sé í fullu samræmi við réttindi fatlaðs fólks og skyldur stjórnvalda sem mælt er fyrir um í samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks og lýsa miklum áhuga og vilja til samráðs við ráðuneytið um það og vísa í því sambandi til 3. mgr. 4. gr. samningsins, þar sem segir:

Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.

 

Virðingarfyllst.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

Anna Lára Steindal, verkefnastjóri í málefnum fatlaðra barna og ungmenna

 

Nálgast má mál sem umsögnin á við hér.