Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um fyrstu drög að aðgerðum í aðgerðaráætlun ferðamálastefnu 2030

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um fyrstu drög að aðgerðum í aðgerðaráætlun ferðamálastefnu 2030

  28. nóvember 2023

 Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir, einhverft fólk og fötluð börn. Samtökin byggja stefnu sína á samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum, sem og heimsmarkmiðum SÞ.

Samtökin taka undir og lýsa stuðningi við það sem fram kemur í umsögn ÖBÍ réttindasamtaka, dags. 22. nóvember 2023, um fyrstu drög að aðgerðum í aðgerðaráætlun ferðamálastefnu 2030.

 Virðingarfyllst.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar

Nálgast má mál sem umsögnin á við hér