Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um útlendinga (afturköllun alþjóðlegrar verndar), 112. mál

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um útlendinga (afturköllun alþjóðlegrar verndar), 112. mál

 

8. október 2025

 

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverft fólk og fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína og starfsemi á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að framfylgja, sem og á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.

Íslenska ríkið fullgilti samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að samningurinn verði lögfestur og frumvarp um lögfestingu samningsins er til meðferðar á Alþingi og þá er í gangi af hálfu ríkisins sérstök landsáætlun um innleiðingu hans.

Í samningnum er ýmis ákvæði sem hafa verulega þýðingu m.t.t. þess máls sem hér er til umsagnar.

4. gr. samningsins hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingarÞar segir:

1.      Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að efla og tryggja að fullu öll mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk án mismununar af nokkru tagi á grundvelli fötlunar.
           Aðildarríkin skuldbinda sig í þessu skyni til:
          a)          að samþykkja alla viðeigandi löggjöf og ráðstafanir á sviði stjórnsýslu og aðrar ráðstafanir til að tryggja þau réttindi sem viðurkennd eru með samningi þessum,
         b)          að gera allar viðeigandi ráðstafanir, þar á meðal með lagasetningu, til þess að gildandi lögum, reglum, venjum og starfsháttum, sem fela í sér mismunun gagnvart fötluðu fólki, verði breytt eða þau afnumin, ...

11. gr. samningsins  hefur yfirskriftina Aðstæður sem skapa hættu og neyðarástand sem kallar á mannúðaraðstoð. Greinin er svohljóðandi:

Aðildarríkin skulu gera allar nauðsynlegar ráðstafanir, í samræmi við skuldbindingar sínar samkvæmt alþjóðalögum, þ.m.t. alþjóðleg mannúðarlög og alþjóðleg mannréttindalög, til þess að tryggja vernd og öryggi fatlaðs fólks þegar hættuástand ríkir, þar á meðal vopnuð átök, neyðarástand sem kallar á mannúðaraðstoð og náttúruhamfarir. 

5. gr. samningsins hefur yfirskriftina Jafnrétti og bann við mismunun og hljóðar svo:

1.      Aðildarríkin viðurkenna að allar manneskjur eru jafnar fyrir og samkvæmt lögum og eiga rétt á jafnri vernd og jöfnum ávinningi af lögum án nokkurra mismununar.
     2.      Aðildarríkin skulu banna hvers kyns mismunun á grundvelli fötlunar og tryggja fötluðu fólki jafna og árangursríka réttarvernd gegn mismunun af hvaða ástæðu sem er. 
     3.      Aðildarríkin skulu, í því skyni að efla jafnrétti og uppræta mismunun, gera allar viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að fötluðu fólki standi viðeigandi aðlögun til boða.

 

Viðeigandi aðlögun er skilgreind svo í 2. gr. samningsins: „Viðeigandi aðlögun“ merkir nauðsynlegar og viðeigandi breytingar og lagfæringar, sem eru ekki umfram það sem eðlilegt má teljast eða of íþyngjandi, þar sem þeirra er þörf í sérstöku tilviki, til þess að tryggt sé að fatlað fólk fái notið eða geti nýtt sér, til jafns við aðra, öll mannréttindi og grundvallarfrelsi.

13. gr. samningsins hefur yfirskriftina Aðgangur að réttinum. Þar segir: 

     1.      Aðildarríkin skulu tryggja fötluðu fólki árangursríkan aðgang að réttinum til jafns við aðra, meðal annars með að lögun málsmeðferðar og aðlögun með tilliti til aldurs í því skyni að greiða fyrir árangursríkri þátttöku þess, beinni eða óbeinni, þar á meðal sem vitni, í allri málsmeðferð, þ.m.t. á rannsóknarstigi eða öðrum fyrri stigum máls.
     2.      Í því skyni að tryggja fötluðu fólki árangursríkan aðgang að réttinum skulu aðildarríkin efla viðeigandi þjálfun fyrir þau sem starfa á sviði réttarvörslu, þar á meðal lögreglu og starfsfólk fangelsa. 

Með vísan til þess sem að framan er rakið telja samtökin bráðnauðsynlegt að við gerð, setningu og framkvæmd þeirra laga sem hér er til umsagnar verði þess sérstaklega gætt að lögin og öll framkvæmd þeirra og eftirlit með þeirri framkvæmd verði í fullkomnu samræmi skuldbindingar íslenska ríkins samkvæmt samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks, eins og íslenska ríkinu er skylt að tryggja, sbr. 4. gr. samningsins

Þá er óhjákvæmilegt að árétta sérstaklega að mannúð og mannúðarsjónarmið verða, eðli máls samkvæmt, að hafa mjög mikið vægi við túlkun og beitingu mannréttindaákvæða laga og fjölþjóðasamninga, almennt og sérstaklega þegar mjög jaðarsett og berskjaldað fólk á hlut að máli og mjög mikilsverð réttindi og veigamiklir hagsmunir þess eru í húfi. Þetta á augljóslega við um fatlaða hælisleitendur og flóttafólk.

Landssamtökin Þroskahjálp telja mjög mikið skorta á að útlendingayfirvöld hafi gætt þessa nægilega vel við meðferð mála og ákvarðanir í málum fatlaðra hælisleitenda. Samtökin ítreka því eftirfarandi ályktun og áskorun til dómsmálaráðherra, sem samþykkt var á landsþingi samtakanna árið 2021:

Landsþing Landssamtakanna Þroskahjálpar skorar á stjórnvöld að innleiða verklag sem tryggir að tekið sé fullt tillit til fötlunar við meðferð mála fatlaðs flóttafólks og fatlaðra umsækjenda um alþjóðlega vernd.

Landssamtökin Þroskahjálp óska eftir að fá að koma á fund allsherjar- og menntamálanefndar til að gera betur grein fyrir sjónarmiðum sínum varðandi það mál sem hér er til umfjöllunar og vísa í því sambandi til 3. mgr. 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, sem hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingar og hljóðar svo:

Þegar aðildarríkin undirbúa löggjöf sína og stefnu samningi þessum til framkvæmdar og vinna að því að taka ákvarðanir um málefni sem varða fatlað fólk skulu þau hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, einnig fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.

 

 Virðingarfyllst.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar

 

Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér