Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um Mennta- og skólaþjónustustofu, 956. mál

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um Mennta- og skólaþjónustustofu, 956. mál

       10. maí 2023

Landssamtökin Þroskahjálp þakka fyrir að hafa fengið frumvarpið til umsagnar og vilja koma eftirfarandi á framfæri varðandi það.

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fötluð börn og fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverft fólk. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur undigengist, sem og á heimsmarkmiðum SÞ, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.

Íslenska ríkið fullgilti samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að samningurinn verði lögfestur og þá er hafin af hálfu ríkisins framkvæmd sérstakrar landsáætlunar um innleiðingu hans. Meginmarkmið samningsins er að tryggja fötluðu fólki raunhæf tækifæri til virkrar þátttöku á öllum sviðum samfélagsins til jafns við aðra og án aðgreiningar.

Í samningnum er lögð sérstök áhersla á skyldur ríkja til að tryggja fötluðum börnum og ungmennum sömu réttindi og tækifæri og önnur börn hafa og nægilegan stuðning og vernd til að það geti orðið að veruleika.

Landssamtökin Þroskahjálp leggja því mikla áherslu á að lög sem varða börn og ungmenni sérstakalega taki fullt tillit til aðstæðna, þarfa og réttinda fatlaðra barna og ungmenna almennt og sérstaklega barna og ungmenna með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverfra barna og ungmenna. Það er mjög afdráttarlaus og mikilvæg skylda íslenska ríkisins að gæta þessa við lagasetningu af þessu tagi og sérstaklega þegar um er að ræða réttiindi eða þjónustu sem varða alþjóðlega viðurkennd mannréttindi, eins og á við um aðgang að menntun.

Þessi skylda er sérstaklega áréttuð í 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, sem hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingar.

Í samningnum eru ýmis ákvæði sem geta augljóslega haft mikla þýðingu í sambandi við það mál sem hér er til umsagnar, s.s. í 5. gr. samningsins hefur yfirskriftina Jafnrétti og bann við mismunun, í 7. gr. samningsins hefur yfirskriftina Fötluð börn og í 24. gr. samningsins hefur yfirskriftina Menntun.

 

Landssamtökin Þroskahjálp skiluðu umsögn um drög að frumvarpi því sem hér er til umfjöllunar þegar það var til umsagnar í samráðsgátt. Þá umsögn samtakanna má nálgast á hlekk að neðan.

file:///C:/Users/thros/Downloads/2023%2003%20Ums%C3%B6gn%20L%C3%9E%20um%20%C3%BEj%C3%B3nustustofnun%20%C3%A1%20svi%C3%B0i%20menntam%C3%A1la.pdf

Í þeirri umsögn gerðu samtökin athugasemd við að í frumvarpinu kæmi ekki sérstaklega og skýrt fram að nýrri stofnun væri ætlað að styðja við skóla án aðgreiningar, heldur væri þar rætt um að stuðla að jöfnuði og inngildingu barna og ungmenna þvert á hópa, skólastig og landssvæði.

Í 5. kafla greinargerðar með frumvarpi því sem hér er til umsagnar, þar sem fjallað er um samráð kemur fram að ákveðið hafi verið að skilgreina inngildingu í skólum og frístundstarfi sem eitt af markmiðum mennta- og þjónustustofu í stað þess að skilgreina þá hópa sem mikilvægast er að veita sérstakan stuðning.

Í þessu sambandi vilja samtökin sérstaklega ítreka og árétta að skólaþjónusta við fötluð börn og ungmenni þarf sérstaklega á heildrænni skoðun að halda í landinu öllu. Þörfin er mikil og þá sérstaklega í tengslum við ráðgjöf, námsefnisgerð, stuðningsúrræði fyrir nemendur með fjölþættan vanda og fyrir þá einstaklinga sem þurfa á einstaklingsmiðaðri nálgun að halda. Mikill skortur er á viðeigandi og nauðsynlegri ráðgjöf fyrir kennara, annað starfsfólk skólanna, nemendur og aðstandendur þeirra.

Stefna um menntun án aðgreiningar á Íslandi var tekin út af Evrópumiðstöðinni, sem er stofnun 30 Evrópuríkja sem vinna saman að málefnum varðandi menntun án aðgreiningar og sérþarfir í námi. Í úttektinni opinberuðust ýmsir mjög alvarlegir vankantar varðandi framkvæmd menntunar án aðgreiningar á Ísland.  Í ljós kom m.a. að mismunandi skilningur er lagður í hugtakið menntun án aðgreiningar á öllum skólastigum og skortur er á skýrari leiðsögn um framkvæmdina, eftirlit og mat á árangri. Til að menntun án aðgreiningar geti staðið undir nafni og skilað þeim mikla ávinningi fyrir nemendur og samfélagið allt sem hún getur ef vel er á málum haldið þarf að bregðast við þessu með mun markvissari og öflugri hætti en gert hefur verið.

Verði frumvarp þetta að lögum er því afar mikilvægt að ný stofnun, Mennta- og skólaþjónustustofa,  leggi sérstaka áherslu á að styðja við stefnu um menntun án aðgreiningar mikið og markvisst og leggi mjög mikla áherslu á hana í uppbyggingu skipulagi og starfsemi stofnunarinnar

 

Virðingarfyllst.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

Anna Lára Steindal, verkefnastjóri í málefnum fatlaðra barna og ungmenna

 

Nálgast má frumvarpið sem umsögnin á við hér.