Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum – útivistartími

 

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum – útivistartími.  S-143/2026

 

25. ágúst 2026

Landssamtökin Þroskahjálp vísa til frumvarps um breytingu á barnaverndarlögum varðandi útivistartíma barna og til umsagnar samtakanna frá 4. ágúst 2026 um frumvarp til nýrra heildarlaga um barnavernd.

Þroskahjálp tekur undir mikilvægi þess að við mótun reglna um útivist barna sé horft til sjálfstæðis þeirra, þátttöku, félagslegra tengsla og ólíks aldurs og þroska. Samtökin leggja jafnframt áherslu á að þessi sjónarmið verði að ná jafnt til fatlaðra barna.

Fötlun má ekki leiða sjálfkrafa til aukinna takmarkana eða ofverndar. Fatlað barn á að njóta sömu möguleika og önnur börn til félagslegrar þátttöku, frístunda og samvista við jafnaldra, með þeim stuðningi og aðlögun sem það þarf. Mat á þörf barns fyrir stuðning þarf að vera einstaklingsbundið og taka mið af aðstæðum þess, þroska og vilja en ekki almennum hugmyndum um getu barna vegna fötlunar.

Þá þarf að tryggja að fötluð börn geti tekið raunverulegan þátt í samráði um reglur sem varða daglegt líf þeirra. Það felur meðal annars í sér að upplýsingar og samráð séu aðgengileg börnum með þroskahömlun, einhverfu og börnum sem nota óhefðbundnar tjáskiptaleiðir.

Þroskahjálp bendir einnig á að réttur til þátttöku verður ekki raunverulegur nema aðstæður geri hana mögulega. Aðgengi að frístundastarfi, viðeigandi stuðningur, fylgd og samgöngur geta ráðið úrslitum um hvort fatlað barn hafi í reynd sömu tækifæri og jafnaldrar þess til félagslífs og frístunda.

Þroskahjálp leggur því áherslu á að við frekari meðferð frumvarpsins verði tryggt að framkvæmd útivistarreglna byggist á jafnræði og réttindum allra barna og leiði hvorki til mismununar né óþarfrar takmörkunar á sjálfstæði og þátttöku fatlaðra barna.


f.h. Landssamtakanna Þroskahjálpar

 

Guðmundur Ármann Pétursson, formaður

 

Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér.