Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (öryggisráðstafanir), 313. mál
26. janúar 2026
Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og / eða skyldar fatlanir og einhverft fólk og öll fötluð börn. Samtökin byggja stefnu sína og starfsemi á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem var lögfestur í desember sl., sbr. lög nr. 80/2025, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum, sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að framfylgja, sem og á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.
Ekki þarf að hafa mörg orð um að frelsissvipting felur í sér mjög mikið og alvarlegt inngrip gagnvart afar mikilsverðum mannréttindum og leiðir óhjákvæmilega til mikilla og margvíslegra skerðinga á ýmsum stjórnmálalegum, borgaralegum, efnahagslegum, félagslegum og menningarlegum mannréttindum. Það er því afar rík og skýr skylda á íslenska ríkinu að gæta þess sérstaklega vel að öll lög sem það setur, sem fela í sér frelsisviptingar fólks um lengri eða skemmri tíma, séu í fullu samræmi við skuldbindingar ríkisins samkvæmt fjölþjóðlegum mannréttindasamningum. Þessi skylda verður eðli máls samkvæmt enn ríkari þegar um er að ræða frelsisviptingar gagnvart ósakhæfum einstaklingum og einstaklingum sem kunna að verða sviptir frelsinu, ekki fyrir framin brot heldur vegna þess að talið er að “hætta verði af manninum” og / eða það sé réttlætanlegt til að “vernda líf, heilsu eða frelsi annarra”.
Þá er augljóst að þegar um einstaklinga er að ræða, sem eiga vegna fötlunar, t.a.m. þroskahömlunar og / eða skyldra fatlana og / eða geðrænna áskorana, erfitt með að gæta réttinda sinna og hagsmuna við meðferð mála og eftir að ákvörðun hefur verið tekin um frelsisviptingu þeirra er bráðnauðsynlegt að tryggja réttaröryggi þeirra sérstaklega vel og tryggja þeim fullnægjandi og viðeigandi stuðning frá hæfum, óháðum aðilum, sem þeir hafa greiðan aðgang að og sem hafa skýr og virk úrræði til að standa vörð um réttindi og hagsmuni skjólstæðinga sinna.
Í þessu sambandi árétta samtökin sérstaklega skyldur íslenska ríkisins samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sbr. lög nr. 80/2025. Í samningnum / lögum nr. 80/2025 eru mörg ákvæði sem hafa mjög mikla þýðingu m.t.t. þess sem fjallað er um í frumvarpinu.
Við setningu þeirra laga, sem hér eru til umsagnar, verða stjórnvöld að gæta sérstaklega vel að skyldum, sem á þeim hvíla samkvæmt 5., 12., 13. og 14. gr. samningsins.
5. gr. samningsins hefur yfirskriftina Jafnrétti og bann við mismunun. Þar segir:
1. Aðildarríkin viðurkenna að allar manneskjur eru jafnar fyrir og samkvæmt lögum og eiga rétt á jafnri vernd og jöfnum ávinningi af lögum án nokkurra mismununar.
2. Aðildarríkin skulu banna hvers kyns mismunun á grundvelli fötlunar og tryggja fötluðu fólki jafna og árangursríka réttarvernd gegn mismunun af hvaða ástæðu sem er.
3. Aðildarríkin skulu, í því skyni að efla jafnrétti og uppræta mismunun, gera allar viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að fötluðu fólki standi viðeigandi aðlögun til boða. ...
Í samningnum er viðeigandi aðlögun skilgreind svo:
Viðeigandi aðlögun merkir nauðsynlegar og viðeigandi breytingar og lagfæringar, sem eru ekki umfram það sem eðlilegt má teljast eða of íþyngjandi, þar sem þeirra er þörf í sérstöku tilviki, til þess að tryggt sé að fatlað fólk fái notið eða geti nýtt sér, til jafns við aðra, öll mannréttindi og grundvallarfrelsi.
12. gr.samningsins hefur yfirskriftina Jöfn viðurkenning fyrir lögum. Þar segir:
1. Aðildarríkin árétta að fatlað fólk á rétt á því að vera viðurkennt alls staðar sem persónur að lögum.
2. Aðildarríkin skulu viðurkenna að fatlað fólk njóti löghæfis til jafns við aðra á öllum sviðum lífsins.
3. Aðildarríkin skulu gera viðeigandi ráðstafanir til þess að fatlað fólk fái þann stuðning sem það kann að þarfnast þegar það nýtir löghæfi sitt. ...
13. gr.samningsins hefur yfirskriftina Aðgangur að réttinum. Þar segir:
1. Aðildarríkin skulu tryggja fötluðu fólki árangursríkan aðgang að réttinum til jafns við aðra, meðal annars með aðlögun málsmeðferðar og aðlögun með tilliti til aldurs í því skyni að greiða fyrir árangursríkri þátttöku þess, beinni eða óbeinni, þar á meðal sem vitni, í allri málsmeðferð, þ.m.t. á rannsóknarstigi eða öðrum fyrri stigum máls.
2. Í því skyni að tryggja fötluðu fólki árangursríkan aðgang að réttinum skulu aðildarríkin efla viðeigandi þjálfun fyrir þau sem starfa á sviði réttarvörslu, þar á meðal lögreglu og starfsfólk fangelsa.
14. gr. samningsins, sem hefur yfirskriftina Frelsi og öryggi einstaklingsins, er sérstaklega mikilvæg m.t.t. þess lagafrumvarps sem hér er til umsagnar. Greinin hljóðar svo:
1. Aðildarríkin skulu tryggja að fatlað fólk, til jafns við aðra:
a) njóti réttar til frelsis og persónulegs öryggis,
b) sé ekki svipt frelsi sínu með ólögmætum hætti eða geðþóttaákvörðunum og að frelsissvipting í hvaða mynd sem er sé lögum samkvæmt og að fötlun skuli ekki undir neinum kringumstæðum réttlæta frelsissviptingu.
2. Sé fatlað fólk svipt frelsi sínu á einhvern hátt skulu aðildarríkin tryggja að því séu tryggð mannréttindi til jafns við aðra í samræmi við alþjóðleg mannréttindalög og að meðferð þess samræmist markmiðum og meginreglum samnings þessa, meðal annars með því að tryggja því viðeigandi aðlögun.
Landssamtökin Þroskahjálp leggja mjög mikla áherslu á að þess verði sérstaklega vel gætt við setningu og framkvæmd þeirra laga, sem hér eru til umfjöllunar, sem og eftirlit með framfylgd þeirra að taka fullt tillit til ákvæða samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, eins og íslenska ríkinu er skylt að gera, sbr. 4. gr. samningsins, sbr. lög nr. 80/2025. Samtökin lýsa miklum áhuga og vilja til náins og virks samráðs við allsherjar- og menntamálanefnd, Alþingi og dómsmálaráðuneytið við það mikilvæga verkefni og vísa í því sambandi til 3. mgr. 4. gr. samningsins, sem hljóðar svo:
Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.
Virðingarfyllst.
Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Þroskahjálpar
Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar
Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér.