Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um almannatryggingar (launavísitala), 155. mál

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um almannatryggingar (launavísitala), 155. mál

 

30. október 2025

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverft fólk og fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína og starfsemi á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að framfylgja, sem og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.

Íslenska ríkið fullgilti samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að samningurinn verði lögfestur og á Alþingi er nú til meðferðar frumvarp um lögfestingu hans og þá er í gangi af hálfu ríkisins framkvæmd sérstakrar landsáætlunar um innleiðingu hans.

28. gr. samningsins hefur yfirskriftina Viðunandi lífskjör og félagsleg verndÞar segir í 1. mgr.:

Aðildarríkin viðurkenna rétt fatlaðs fólks og fjölskyldna þess til viðunandi lífskjara, þar á meðal viðunandi fæðis, klæða og húsnæðis, og til sífellt batnandi lífsskilyrða og skulu gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja og stuðla að því að þessi réttur verði að veruleika án mismununar á grundvelli fötlunar. 

Tenging við launavísitölu er nauðsynleg til að koma í veg fyrir þá miklu kjaragliðnun, sem fatlað fólk hefur mátt þola á síðustu áratugum. Samtökin lýsa því heils hugar stuðningi við frumvarpið.

Markmið stjórnvalda hlýtur þó að vera að hækka lífeyri fatlaðs fólks verulega umfram hækkun samkvæmt launavísitölu til að leiðrétta það mikla óréttlæti, sem hefur viðgengist og leitt hefur til fátæktar og mjög skertra tækifæra fatlaðs fólks til sjálfstæðs lífs og virkrar þátttöku í  samfélaginu.

Landssamtökin Þroskahjálp leggja sérstaka áherslu að mjög brýnt er að bæta kjör þess fólks, sem vegna fötlunar sinnar og/eða mjög lítilla eða engra tækifæra á vinnumarkaði, verður að láta örorkubætur duga fyrir allri framfærslu sinni öll sín fullorðinsár.  

 

Virðingarfyllst.

Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Þroskahjálpar

Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar

Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér.