Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum (skerðing á lífeyri vegna búsetu), Þingskjal 28 — 28. mál.

Landssamtökin Þroskahjálp þakka fyrir að hafa fengið frumvarpið til umsagnar og vilja koma eftirfarandi á framfæri varðandi það

 

Með frumvarpi þessu er verið að bregðast við vaxandi vanda fólks sem kemur hingað til lands, m.a. til atvinnuþátttöku og einnig íslendinga sem hafa búið erlendis um lengri tíma.

Þessir einstaklingar koma oft frá löndum þar sem almannatryggingakerfi  eru veikburða og/eða vanþróðuð og greiðslur úr þeim lágar, a.m.k. í ljósi verðlags hér á landi. Því er eðlilegt og sanngjarnt að íslenskt samfélag tryggi þessum einstaklingum sambærilega möguleika til framfærslu og öðrum sem í landinu búa  og miði í því sambandi við raunverulegar tekjur þeirra í stað áunnina réttinda í árum talið. 

Með vísan til þess sem að framan segir mæla Landssamtökin Þroskahjálp eindregið með að  frumvarpið verði samþykkt.

 

Virðingarfyllst.

Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Þroskahjálpar.

Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar.

Nálgast má frumvarpið sem umsögnin á við hér: