Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að stefnu í áfengis- og vímuvarnarmálum til ársins 2035

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að stefnu í áfengis- og vímuvarnarmálum til ársins 2035

 

10. febrúar 2026

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og / eða skyldar fatlanir og einhverft fólk og öll fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína og starfsemi á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum, sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að framfylgja, sem og á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.

Íslenska ríkið fullgilti samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Samningurinn var lögfestur í desember sl. með lögum nr. 80/2025 og þá er í gangi af hálfu ríkisins sérstök landsáætlun um innleiðingu hans.

4. gr. samningsins hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingar. Þar segir:

     1.      Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að efla og tryggja að fullu öll mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk án mismununar af nokkru tagi á grundvelli fötlunar.
        Aðildarríkin skuldbinda sig í þessu skyni til:
         a)          að samþykkja alla viðeigandi löggjöf og ráðstafanir á sviði stjórnsýslu og aðrar ráðstafanir til að tryggja þau réttindi sem viðurkennd eru með samningi þessum,
         b)          að gera allar viðeigandi ráðstafanir, þar á meðal með lagasetningu, til þess að gildandi lögum, reglum, venjum og starfsháttum, sem fela í sér mismunun gagnvart fötluðu fólki, verði breytt eða þau afnumin,
         c)          að taka mið af vernd og framgangi mannréttinda fatlaðs fólks við alla stefnumótun og áætlanagerð
...

Við undirbúning, gerð, samþykkt og framfylgd þeirrar stefnu, sem hér er til umsagnar, þarf heilbrigðisráðuneytið að líta sérstaklega til ákvæða 25. gr. samningsins sem hefur yfirskriftina Heilbrigði og 5. gr. samningsins, sem hefur yfirskriftina Jafnrétti og bann við mismunun og hljóðar svo:

     1.      Aðildarríkin viðurkenna að allar manneskjur eru jafnar fyrir og samkvæmt lögum og eiga rétt á jafnri vernd og jöfnum ávinningi af lögum án nokkurra mismununar.
     2.      Aðildarríkin skulu banna hvers kyns mismunun á grundvelli fötlunar og tryggja fötluðu fólki jafna og árangursríka réttarvernd gegn mismunun af hvaða ástæðu sem er. 
     3.      Aðildarríkin skulu, í því skyni að efla jafnrétti og uppræta mismunun, gera allar viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að fötluðu fólki standi viðeigandi aðlögun til boða. 
     4.      Eigi ber að líta á sértækar aðgerðir, sem eru nauðsynlegar til þess að flýta fyrir eða ná fram raunverulegu jafnrétti fyrir fatlað fólk, sem mismunun í skilningi samnings þessa. 

Viðeigandi aðlögun er skilgreind í 2. gr. samningsins. Þar segir:

„Viðeigandi aðlögun“ merkir nauðsynlegar og viðeigandi breytingar og lagfæringar, sem eru ekki umfram það sem eðlilegt má teljast eða of íþyngjandi, þar sem þeirra er þörf í sérstöku tilviki, til þess að tryggt sé að fatlað fólk fái notið eða geti nýtt sér, til jafns við aðra, öll mannréttindi og grundvallarfrelsi.

Landssamtökin Þroskahjálp fagna gerð stefnu í áfengis- og vímvarnarmálum og vilja á þessu stigi koma eftirfarandi á framfæri við heilbrigðisráðuneytið varðandi stefnuna en áskilja sér rétt til að koma frekari ábendingum, athugasemdum og áhersluatriðum á framfæri á síðari stigum. Í því sambandi vísa samtökin sérstaklega til samráðskyldna stjórnvalda samkvæmt 3. mgr. 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks. Þar segir:

Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.

  • Tryggja verður að stefnan og aðgerðir samkvæmt henni taki fullt tillit til aðstæðna, þarfa og réttinda fólks með þroskhömlun og / eða skyldar fatlanir.

 

  • Fólk með þroskahömlun og / eða skyldar fatlanir stendur oft frammi fyrir sértækum áskorunum þegar kemur að forvörnum, greiningu og aðgengi að þjónustu vegna áfengis- og vímuefnavanda.

Því er nauðsynlegt að stefnan:

1) Tryggi aðgengi að forvörnum og fræðslu á formi, sem hentar fólki með þroskahömlun og / eða skyldar fatlanir.

Stefnan greinir vel frá þörf á forvörnum almennt en það vantar skýrar leiðir til þess að fræðsla og forvarnir séu framkvæmdar á þann hátt að þær nýtist fólki með þroskahömlun og / eða skyldar fatlanir, t.d. á auðskildu máli og með ráðgjöf, sem tekur tillit til þarfa fólks með þroskahömlun og / eða skyldar fatlanir.

2) Tryggi aðgengi að þjónustu og meðferðarúrræðum.

Tryggja þarf að  þjónusta sé raunverulega aðgengileg fyrir fólk með þroskahömlun og / eða skyldar fatlanir. Því fylgja sérstakar hindranir, t.d. vegna skorts á sérhæfðum úrræðum, takmarkaðs aðgengis að upplýsingum, þjónustuferla sem taka ekki mið af fötlun og skipulag sem tekur ekki nægjanlega tillit til þarfa fólks með þroskahömlun og / eða skyldar fatlanir.

3) Betri greining og mæling á þjónustu.

Mikilvægt er að tryggja að gögn séu sundurliðað eftir fötlun og öðrum breytum sem geta sýnt misræmi í aðgengi eða árangri, sbr. 31. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks (lög nr. 80/2025) sem hefur yfirskriftina Tölfræðilegar upplýsingar og gagnasöfnun.

4) Samráð við fatlað fólk og hagsmunasamtök sem koma fram fyrir þess hönd.

Við framhald stefnumótunarinnar  og síðari verkefna þarf að eiga markvisst og innihaldsríkt samráð við fólk með þroskahömlun og / eða skyldar faltanir og samtök sem koma fram fyrir þess hönd, sbr. samráðsskyldur samkvæmt samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks (lög nr. 80/2025), sem vísað er til að framan.

Virðingarfyllst.

Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar

Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar

 

 Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér.