Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að reglugerð um aðstoðarmannakort fatlaðs fólks (Mál nr. S-63 2026)
15. ágúst 2026
Landssamtökin Þroskahjálp eru heildarsamtök fatlaðs fólks, sem vinna sérstaklega að réttinda- og hagsmunamálum fólks með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverfs fólks og allra fatlaðra barna og aðstandenda þeirra. Samtökin byggja stefnu sína og starfsemi á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að framfylgja, sem og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.
Landssamtökin Þroskahjálp fagna því að setja skuli samræmdar reglur um aðstoðarmannakort fatlaðs fólks. Slíkt kort getur verið mikilvægt skref til að tryggja jafnræði og auðvelda fötluðu fólki þátttöku í samfélaginu til jafns við aðra.
Þroskahjálp telur þó mikilvægt að reglugerðin taki skýrar mið af því að rétturinn til kortsins eigi að ráðast af þörf fatlaðs einstaklings fyrir aðstoð til þátttöku, en ekki því hvernig sú aðstoð er skipulögð eða hver veitir hana.
Sérstaklega telur Þroskahjálp of þrönga þá skilgreiningu í drögunum að aðstoðarmaður þurfi að vera einstaklingur sem ráðinn er til starfs í þágu ákveðinnar félagsþjónustu við fatlað fólk. Fatlað fólk getur þurft aðstoð við samfélagsþátttöku frá öðrum, svo sem aðstandanda eða öðrum einstaklingi sem það velur. Aðstoðarmannakortið á að vera gefið út á hinn fatlaða einstaklings og það á að vera þess einstaklings að ákveða hvern hann vill nýta sér til aðstoðar í hvert og eitt skipti.
Þá telur Þroskahjálp rétt að endurskoða 15 ára aldursmörk reglugerðarinnar. Fötluð börn undir 15 ára aldri geta einnig þurft aðstoð umfram það sem almennt má gera ráð fyrir vegna aldurs þeirra og sú stuðningsþörf getur haft í för með sér aukinn kostnað og hindrað þátttöku þeirra og fjölskyldna þeirra.
Einnig þarf að tryggja að framkvæmdin verði einföld, samræmd og réttindamiðuð um allt land. Réttur til aðstoðarmannkorts ætti ekki að verða háður ólíkri stjórnsýslu eða matsframkvæmd einstakra sveitarfélaga og forðast þarf óþarfa endurmat þegar stuðningsþörf er varanleg.
Þroskahjálp hvetur jafnframt stjórnvöld til að vinna áfram að því að gildissvið kortsins nái sem víðast. Markmiðið hlýtur að vera að nauðsynleg aðstoð vegna fötlunar leiði ekki til aukins kostnaðar fyrir fatlað fólk og standi þannig í vegi fyrir fullri og virkri þátttöku þess í samfélaginu.
Virðingarfyllst.
Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Landssamtakanna Þroskahjálapr
Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar
Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér