Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla, orlofs- og desemberuppbót)

 

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla, orlofs- og desemberuppbót) – Mál nr. S-156/2026

 

1. september 2026

Landssamtökin Þroskahjálp vísa til umsagnar sinnar, dags. 10. ágúst 2026 um áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 - Mál nr. S-139/2026.

Samtökin fagna þeim áformum um lagasetningu, sem hér eru til umsagnar en árétta að þau telja að skilyrði, sem leiðir til mismununar gagnvart lífeyrisþegum, sem hafa lögheimili erlendis sé óréttlátt og byggist ekki á nægilegum málefnalegum rökum og skora því á félags- húsnæðismálaráðherra að falla frá því skilyrði.

 

Virðingarfyllst,

Guðmundur Ármann Pétursson,
formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar

Anna Lára Steindal,
framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar

 

Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér.