Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að frumvarpi sifjalaganefndar til nýrra hjúskaparlaga

 

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að frumvarpi sifjalaganefndar til nýrra hjúskaparlaga

 

2. september 2026

Landssamtökin Þroskahjálp eru heildarsamtök fatlaðs fólks, sem vinna sérstaklega að réttinda- og hagsmunamálum fólks með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverfs fólks og allra fatlaðra barna og aðstandenda þeirra. Samtökin byggja stefnu sína og starfsemi á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að framfylgja, sem og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.

Íslenska ríkið fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Samningurinn var tekinn í íslensk lög, með lögum nr. 80/2025 og þá er í gangi af hálfu ríkisins sérstök landsáætlun um innleiðingu hans.

Í formálsorðum samningsins segir m.a.:

   Ríki, sem eiga aðild að samningi þessum, ...
    c) sem árétta að öll mannréttindi og grundvallarfrelsi eru algild, ódeilanleg, innbyrðis háð og samtvinnuð og árétta nauðsyn þess að tryggja að fatlað fólk njóti þeirra að fullu án mismununar, ...
    j) sem viðurkenna nauðsyn þess að efla og vernda mannréttindi alls fatlaðs fólks, þar með talið þess sem þarf mikinn stuðning, ...
    n) sem viðurkenna mikilvægi sjálfræðis og sjálfstæðis fyrir fatlað fólk, þar með talið frelsis til að taka eigin ákvarðanir, ...
    o) sem telja að fatlað fólk eigi að hafa tækifæri til að taka virkan þátt í ákvarðanatökuferli um stefnur og áætlanir, meðal annars þær sem varða það með beinum hætti, ...
    q) sem viðurkenna að fatlaðar konur og stúlkur eru oft í meiri hættu, innan heimilis sem utan, á að verða fyrir ofbeldi, skaða eða misþyrmingum, vanrækslu eða hirðuleysi, illri meðferð eða misnotkun í gróðaskyni, ...
    s) sem leggja áherslu á nauðsyn þess að innleiða kynjasjónarmið í allar aðgerðir sem ætlað er að ná fram fullum mannréttindum og grundvallarfrelsi fatlaðs fólks,
    x) sem eru þess fullviss að fjölskyldan er hin eðlilega frumeining samfélagsins sem samfélagi og ríki ber að vernda og að fatlað fólk og fjölskyldur þess eiga að fá nauðsynlega vernd og aðstoð til þess að gera fjölskyldum kleift að leggja sitt af mörkum til þess að fatlað fólk geti notið réttinda sinna til fulls og til jafns við aðra,...

4. gr. samningsins (l. 80/2025) hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingarÞar segir:

1.      Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að efla og tryggja að fullu öll mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk án mismununar af nokkru tagi á grundvelli fötlunar.
           Aðildarríkin skuldbinda sig í þessu skyni til:
          a)       að samþykkja alla viðeigandi löggjöf og ráðstafanir á sviði stjórnsýslu og aðrar ráðstafanir til að tryggja þau réttindi sem viðurkennd eru með samningi þessum,
         b)       að gera allar viðeigandi ráðstafanir, þar á meðal með lagasetningu, til þess að gildandi lögum, reglum, venjum og starfsháttum, sem fela í sér mismunun gagnvart fötluðu fólki, verði breytt eða þau afnumin, ...
 

Af framangreindu leiðir að við undirbúning, gerð, setningu og framkvæmd hjúskaparlaga hvílir sú skýra skylda á íslenska ríkinu að tryggja að fullt tillit verði tekið til aðstæðna, þarfa og réttinda fatlaðs fólks almennt og ekki síst fólks með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverfs fólks, eins og mælt er fyrir um í samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks (l. 80/2025) til að þau njóti þar fullrar viðurkenningar, aðlögunar málsmeðferðar, viðeigandi aðlögunar og stuðnings og viðeigandi og fullnægjandi réttindaverndar, þannig að tryggt verði að þau njóti, til jafns við aðra, allra þeirra réttinda og tækifæra, sem um er fjallað og verður fjallað í hjúskaparlögum.

Landssamtökin Þroskahjálp lýsa miklum áhuga og vilja til samráðs við hlutaðeigandi stjórnvöld við það mikilvæga og nauðsynlega verkefni og vísa í því sambandi til eftirfarandi ákvæðis 3. mgr. 4. gr. samnings SÞ (l. 80/2025):

Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.

Í samningnum eru mörg ákvæði, sem hafa verulega þýðingu m.t.t. þeirra frumvarpsdraga, sem hér eru til umsagnar og við endurskoðun hjúskaparlaga verða hlutaðeigandi stjórnvöld að líta sérstaklega til ákvæða eftirfarandi greina samningsins (l. 80/2025).       

5. gr. samningsins hefur yfirskriftina Jafnrétti og bann við mismunun og hljóðar svo:

     1.      Aðildarríkin viðurkenna að allar manneskjur eru jafnar fyrir og samkvæmt lögum og eiga rétt á jafnri vernd og jöfnum ávinningi af lögum án nokkurra mismununar.
     2.      Aðildarríkin skulu banna hvers kyns mismunun á grundvelli fötlunar og tryggja fötluðu fólki jafna og árangursríka réttarvernd gegn mismunun af hvaða ástæðu sem er. 
     3.      Aðildarríkin skulu, í því skyni að efla jafnrétti og uppræta mismunun, gera allar viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að fötluðu fólki standi viðeigandi aðlögun til boða. 
     4.      Eigi ber að líta á sértækar aðgerðir, sem eru nauðsynlegar til þess að flýta fyrir eða ná fram raunverulegu jafnrétti fyrir fatlað fólk, sem mismunun í skilningi samnings þessa. 

Viðeigandi aðlögun er skilgreind svo í 2. gr. samningsins (l. 80/2025), sem hefur yfirskriftina Skilgreiningar:

„Viðeigandi aðlögun“ merkir nauðsynlegar og viðeigandi breytingar og lagfæringar, sem eru ekki umfram það sem eðlilegt má teljast eða of íþyngjandi, þar sem þeirra er þörf í sérstöku tilviki, til þess að tryggt sé að fatlað fólk fái notið eða geti nýtt sér, til jafns við aðra, öll mannréttindi og grundvallarfrelsi.

12. gr. samningsins (l. 80/2025) hefur yfirskriftina Jöfn viðurkenning fyrir lögum og hljóðar svo:

1.         Aðildarríkin árétta að fatlað fólk á rétt á því að vera viðurkennt alls staðar sem persónur að lögum.

2.         Aðildarríkin skulu viðurkenna að fatlað fólk njóti löghæfis til jafns við aðra á öllum sviðum lífsins.

3.         Aðildarríkin skulu gera viðeigandi ráðstafanir til þess að fatlað fólk fái þann stuðning sem það kann að þarfnast þegar það nýtir löghæfi sitt.

4.         Aðildarríkin skulu tryggja að allar ráðstafanir, sem varða nýtingu löghæfis, feli í sér viðeigandi og árangursríka vernd til þess að koma í veg fyrir misnotkun í samræmi við alþjóðleg mannréttindalög. Með slíkri vernd skal tryggt að ráðstafanir sem varða nýtingu löghæfis virði réttindi, vilja og óskir einstaklingsins, leiði ekki til hagsmunaárekstra eða hafi ótilhlýðileg áhrif, séu í samræmi við og sniðin að aðstæðum viðkomandi einstaklings, gildi í skemmsta mögulega tíma og séu endurskoðaðar reglulega af til þess bæru sjálfstæðu og óháðu yfirvaldi eða dómstóli. Verndin skal taka mið af og vera í samræmi við þau áhrif sem slíkar ráðstafanir hafa á réttindi og hagsmuni einstaklingsins.

5.         Aðildarríkin skulu gera allar viðeigandi og árangursríkar ráðstafanir, samkvæmt ákvæðum þessarar greinar, til þess að tryggja jafnan rétt fatlaðs fólks til þess að eiga eða erfa eignir, stýra eigin fjármálum og hafa til jafns við aðra aðgang að bankalánum, veðlánum og annars konar lánafyrirgreiðslu, jafnframt því að tryggja að fatlað fólk sé ekki svipt eignum sínum eftir geðþótta.

13. gr. samningsins (l. 80/2025) hefur yfirskriftina Aðgangur að réttinumog hljóðar svo:

1. Aðildarríkin skulu tryggja fötluðu fólki árangursríkan aðgang að réttinum til jafns við aðra, meðal annars með aðlögun málsmeðferðar og aðlögun með tilliti til aldurs í því skyni að greiða fyrir árangursríkri þátttöku þess, beinni eða óbeinni, þar á meðal sem vitni, í allri málsmeðferð, þar með talið á rannsóknarstigi eða öðrum fyrri stigum máls.

2. Í því skyni að tryggja fötluðu fólki árangursríkan aðgang að réttinum skulu aðildarríkin efla viðeigandi þjálfun fyrir þau sem starfa á sviði réttarvörslu, þar á meðal lögreglu og starfsfólk fangelsa.

16. gr. samningsins (l. 80/2025) hefur yfirskriftina Frelsi frá misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingum. Þar segir m.a.:

1. Aðildarríkin skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir á sviði löggjafar, stjórnsýslu, félags- og menntamála og aðrar ráðstafanir í því skyni að vernda fatlað fólk, jafnt innan heimilis sem utan, fyrir hvers kyns misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingum, þar á meðal kynbundnum hliðum þessa.

2. Aðildarríkin skulu einnig gera allar viðeigandi ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir hvers konar misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingar, þar á meðal með því að tryggja fötluðu fólki og fjölskyldum þess og umönnunaraðilum viðeigandi aðstoð og stuðning, sem tekur mið af kyni og aldri, meðal annars með upplýsingagjöf og fræðslu um hvernig beri að forðast, átta sig á og tilkynna um misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingar. Aðildarríkin skulu tryggja að við þá þjónustu þar sem vernd er veitt sé tekið mið af kyni, aldri og fötlun. ...

5. Aðildarríkin skulu taka upp árangursríka löggjöf og stefnu, þar á meðal löggjöf og stefnu þar sem sérstakt tillit er tekið til kvenna og barna, til að tryggja að misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingar sem beinast gegn fötluðu fólki verði greindar, rannsakaðar og eftir atvikum ákært vegna þeirra.

23. gr. samningsins (l. 80/2025) hefur yfirskriftina Virðing fyrir heimili og fjölskyldu. Þar segir m.a.:

       1.      Aðildarríkin skulu gera árangursríkar og viðeigandi ráðstafanir í því skyni að uppræta mismunun gagnvart fötluðu fólki í öllum málum sem lúta að hjónabandi, fjölskyldu, foreldrahlutverki og samböndum, á sama hátt og gildir um aðra, til þess að tryggja:
         a)          að réttur alls fatlaðs fólks, sem hefur náð tilskildum aldri, til að ganga í hjónaband og stofna fjölskyldu, með frjálsu og fullu samþykki hjónaefnanna, sé virtur,
...

Með vísan til þess sem að framan er rakið óska Landssamtökin Þroskahjálp hér með mjög eindregið eftir fundi með sifjalaganefnd og/eða dómsmálaráðuneytinu til að fara yfir ákvæði þeirra frumvarpsdraga, sem hér eru til umsagnar, m.t.t. þess hvort þar sé tekið nægilegt tillit til aðstæðna, þarfa og réttinda fatlaðs fólks almennt og sérstaklega fólks með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverfs fólks. Í þessu sambandi vísa samtökin til skyldna ríkisins samkvæmt eftirfarandi ákvæði 3. mgr. 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks (l. 80/2025) til að hafa náið samráð við fatlað fólk og til að tryggja virka þátttöku þess með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd:

Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.

 

Virðingarfyllst,

Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar

Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar

 

Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér