Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að aðgerðaáætlun gegn mansali
4. september 2026
Landssamtökin Þroskahjálp eru heildarsamtök fatlaðs fólks, sem vinna sérstaklega að réttinda- og hagsmunamálum fólks með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverfs fólks og allra fatlaðra barna og aðstandenda þeirra. Samtökin byggja stefnu sína og starfsemi á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að framfylgja, sem og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.
Landssamtökin Þroskahjálp fagna gerð aðgerðaáætlunar gegn mansali en vilja koma eftirfarandi athugasemdum, ábendingum, óskum og tillögum á framfæri við dómsmálaráðuneytið.
Íslenska ríkið fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Samningurinn var tekinn í íslensk lög, með lögum nr. 80/2025 og þá er í gangi af hálfu ríkisins sérstök landsáætlun um innleiðingu hans.
4. gr. samningsins (l. 80/2025) hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingar. Þar segir:
1. Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að efla og tryggja að fullu öll mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk án mismununar af nokkru tagi á grundvelli fötlunar.
Aðildarríkin skuldbinda sig í þessu skyni til:
a) að samþykkja alla viðeigandi löggjöf og ráðstafanir á sviði stjórnsýslu og aðrar ráðstafanir til að tryggja þau réttindi sem viðurkennd eru með samningi þessum,
b) að gera allar viðeigandi ráðstafanir, þar á meðal með lagasetningu, til þess að gildandi lögum, reglum, venjum og starfsháttum, sem fela í sér mismunun gagnvart fötluðu fólki, verði breytt eða þau afnumin,
c) að taka mið af vernd og framgangi mannréttinda fatlaðs fólks við alla stefnumótun og áætlanagerð, ...
Rannsóknir sýna með óyggjandi hætti að fatlað fólk og ekki síst fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverft fólk er margfalt líklegra en flestir aðrir hópar fólks til að verða fyrir ofbeldi og misnotkun af öllu tagi, þar með talið misnotkun í gróðaskyni.
Af framangreindu leiðir að við undirbúning, gerð og framkvæmd aðgerðaáætlunar gegn mansali hvílir sú skýra lagalega og þjóðréttarlega skylda á íslenska ríkinu að tryggja að fullt tillit verði tekið til aðstæðna, þarfa og réttinda fatlaðs fólks almennt og ekki síst fólks með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverfs fólks, eins og mælt er fyrir um í samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks (l. 80/2025).
Landssamtökin Þroskahjálp telja mjög mikilvægt að í aðgerðaáætluninni verði m.a.:
- Sérstaklega tryggt náið samráð við fatlað fólk með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.
- Sérstaklega fjallað um fötlun sem áhættuþátt m.t.t. mansals.
- Fötlun sérstök breyta í gagnasöfnun (aðgerð 1. 2.).
- Lögð sérstök áhersla á fræðslu um fötlun og mansal í forvarnarhlutanum (2).
- Tryggt raunverulegt aðgengi að þeim upplýsingum sem setja á í ofbeldisgátt 112.
- Tryggð aðlögun málsmeðferðar, viðeigandi aðlögun og viðeigandi stuðningur við ákvarðanatöku m.t.t. aðstæðna, þarfa og réttinda fatlaðs fólks, eins og mælt er fyrir um í samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks
Í samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks (l. 80/2025) eru mörg ákvæði, sem hafa mikla þýðingu m.t.t. þeirrar aðgerðaáætlunar, sem hér er til umsagnar og við gerð, og framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar verða dómsmálaráðuneytið og stýrihópur Stjórnarráðsins um aðgerðir gegn mansali því að líta sérstaklega til ákvæða samningsins. Í því sambandi benda Landssamtökin þroskahjálp sérstaklega á eftirfarandi greinar samningsins (l. 80/2025):
16. gr. samningsins (l. 80/2025) hefur yfirskriftina Frelsi frá misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingum.
1. Aðildarríkin skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir á sviði löggjafar, stjórnsýslu, félags- og menntamála og aðrar ráðstafanir í því skyni að vernda fatlað fólk, jafnt innan heimilis sem utan, fyrir hvers kyns misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingum, þar á meðal kynbundnum hliðum þessa.
2. Aðildarríkin skulu einnig gera allar viðeigandi ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir hvers konar misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingar, þar á meðal með því að tryggja fötluðu fólki og fjölskyldum þess og umönnunaraðilum viðeigandi aðstoð og stuðning, sem tekur mið af kyni og aldri, meðal annars með upplýsingagjöf og fræðslu um hvernig beri að forðast, átta sig á og tilkynna um misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingar. Aðildarríkin skulu tryggja að við þá þjónustu þar sem vernd er veitt sé tekið mið af kyni, aldri og fötlun.
3. Í því skyni að koma í veg fyrir misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingar í hvaða mynd sem er skulu aðildarríkin tryggja að óháð yfirvöld hafi árangursríkt eftirlit með allri aðstöðu og áætlunum sem er ætlað að þjóna fötluðu fólki.
4. Aðildarríkin skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir til þess að efla líkamlegan, vitsmunalegan og sálrænan bata, endurhæfingu og félagslega enduraðlögun fatlaðs fólks, sem verður þolendur misnotkunar í gróðaskyni, ofbeldis eða misþyrminga í einhverri mynd, meðal annars með því að bjóða fram þjónustu sem veitir vernd. Slíkur bati og enduraðlögun skulu fara fram í umhverfi sem stuðlar að bættri heilsu, velferð, sjálfsvirðingu, reisn og sjálfræði viðkomandi einstaklings, þar sem tillit skal tekið til kyn- og aldursbundinna þarfa.
5. Aðildarríkin skulu taka upp árangursríka löggjöf og stefnu, þar á meðal löggjöf og stefnu þar sem sérstakt tillit er tekið til kvenna og barna, til að tryggja að misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingar sem beinast gegn fötluðu fólki verði greindar, rannsakaðar og eftir atvikum ákært vegna þeirra.
13. gr. samningsins (l. 80/2025) hefur yfirskriftina Aðgangur að réttinumog hljóðar svo:
1. Aðildarríkin skulu tryggja fötluðu fólki árangursríkan aðgang að réttinum til jafns við aðra, meðal annars með aðlögun málsmeðferðar og aðlögun með tilliti til aldurs í því skyni að greiða fyrir árangursríkri þátttöku þess, beinni eða óbeinni, þar á meðal sem vitni, í allri málsmeðferð, þar með talið á rannsóknarstigi eða öðrum fyrri stigum máls.
2. Í því skyni að tryggja fötluðu fólki árangursríkan aðgang að réttinum skulu aðildarríkin efla viðeigandi þjálfun fyrir þau sem starfa á sviði réttarvörslu, þar á meðal lögreglu og starfsfólk fangelsa.
5. gr. samningsins hefur yfirskriftina Jafnrétti og bann við mismunun og hljóðar svo:
1. Aðildarríkin viðurkenna að allar manneskjur eru jafnar fyrir og samkvæmt lögum og eiga rétt á jafnri vernd og jöfnum ávinningi af lögum án nokkurra mismununar.
2. Aðildarríkin skulu banna hvers kyns mismunun á grundvelli fötlunar og tryggja fötluðu fólki jafna og árangursríka réttarvernd gegn mismunun af hvaða ástæðu sem er.
3. Aðildarríkin skulu, í því skyni að efla jafnrétti og uppræta mismunun, gera allar viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að fötluðu fólki standi viðeigandi aðlögun til boða.
4. Eigi ber að líta á sértækar aðgerðir, sem eru nauðsynlegar til þess að flýta fyrir eða ná fram raunverulegu jafnrétti fyrir fatlað fólk, sem mismunun í skilningi samnings þessa.
Viðeigandi aðlögun er skilgreind svo í 2. gr. samningsins (l. 80/2025), sem hefur yfirskriftina Skilgreiningar:
„Viðeigandi aðlögun“ merkir nauðsynlegar og viðeigandi breytingar og lagfæringar, sem eru ekki umfram það sem eðlilegt má teljast eða of íþyngjandi, þar sem þeirra er þörf í sérstöku tilviki, til þess að tryggt sé að fatlað fólk fái notið eða geti nýtt sér, til jafns við aðra, öll mannréttindi og grundvallarfrelsi.
12. gr. samningsins (l. 80/2025) hefur yfirskriftina Jöfn viðurkenning fyrir lögum og hljóðar svo:
1. Aðildarríkin árétta að fatlað fólk á rétt á því að vera viðurkennt alls staðar sem persónur að lögum.
2. Aðildarríkin skulu viðurkenna að fatlað fólk njóti löghæfis til jafns við aðra á öllum sviðum lífsins.
3. Aðildarríkin skulu gera viðeigandi ráðstafanir til þess að fatlað fólk fái þann stuðning sem það kann að þarfnast þegar það nýtir löghæfi sitt.
4. Aðildarríkin skulu tryggja að allar ráðstafanir, sem varða nýtingu löghæfis, feli í sér viðeigandi og árangursríka vernd til þess að koma í veg fyrir misnotkun í samræmi við alþjóðleg mannréttindalög. Með slíkri vernd skal tryggt að ráðstafanir sem varða nýtingu löghæfis virði réttindi, vilja og óskir einstaklingsins, leiði ekki til hagsmunaárekstra eða hafi ótilhlýðileg áhrif, séu í samræmi við og sniðin að aðstæðum viðkomandi einstaklings, gildi í skemmsta mögulega tíma og séu endurskoðaðar reglulega af til þess bæru sjálfstæðu og óháðu yfirvaldi eða dómstóli. Verndin skal taka mið af og vera í samræmi við þau áhrif sem slíkar ráðstafanir hafa á réttindi og hagsmuni einstaklingsins.
5. Aðildarríkin skulu gera allar viðeigandi og árangursríkar ráðstafanir, samkvæmt ákvæðum þessarar greinar, til þess að tryggja jafnan rétt fatlaðs fólks til þess að eiga eða erfa eignir, stýra eigin fjármálum og hafa til jafns við aðra aðgang að bankalánum, veðlánum og annars konar lánafyrirgreiðslu, jafnframt því að tryggja að fatlað fólk sé ekki svipt eignum sínum eftir geðþótta.
31. gr. samningsins (l. 80/2025) hefur yfirskriftina Tölfræðilegar upplýsingar og gagnasöfnunog hljóðar svo.
1. Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að safna viðeigandi upplýsingum, meðal annars tölfræðilegum gögnum og rannsóknargögnum, sem gera þeim kleift að móta og framfylgja stefnum samningi þessum til framkvæmdar. Vinnuferli við að safna og viðhalda þessum upplýsingum skal:
a) vera í samræmi við lögmæltar öryggisráðstafanir, þar á meðal löggjöf um gagnavernd, til þess að tryggja trúnað og virðingu fyrir einkalífi fatlaðs fólks,
b) vera í samræmi við alþjóðlega viðurkennd viðmið um vernd mannréttinda og grundvallarfrelsis og siðferðileg viðmið við söfnun og notkun tölfræðilegra upplýsinga.
2. Upplýsingar, sem er safnað samkvæmt þessari grein, skal sundurliða eftir því sem við á og nota til þess að meta hvernig aðildarríkjunum miðar að innleiða skuldbindingar sínar samkvæmt samningi þessum og til að greina og takast á við þær hindranir sem fatlað fólk stendur frammi fyrir þegar það hyggst nýta sér réttindi sín.
3. Aðildarríkin skulu ábyrgjast miðlun fyrrnefndra tölfræðilegra upplýsinga og tryggja fötluðu fólki og öðrum aðgengi að þeim.
Með vísan til þess sem að framan er rakið óska Landssamtökin Þroskahjálp hér með mjög eindregið eftir fundi með dómsmálaráðuneytinu og/eða stýrihópi Stjórnarráðsins um aðgerðir gegn mansali til að fara yfir ákvæði þeirra frumvarpsdraga, sem hér eru til umsagnar, m.t.t. þess hvort þar sé tekið nægilegt tillit til aðstæðna, þarfa og réttinda fatlaðs fólks almennt og sérstaklega fólks með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverfs fólks. Í þessu sambandi vísa samtökin til skyldna ríkisins samkvæmt eftirfarandi ákvæði 3. mgr. 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks (l. 80/2025) til að hafa náið samráð við fatlað fólk og til að tryggja virka þátttöku þess með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd:
Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.
Virðingarfyllst,
Guðmundur Ármann Pétursson,
formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar
Anna Lára Steindal,
framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar
Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér.