Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áform um mótun ungmennastefnu
26. mars 2026
Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á öll fötluð börn og ungmenni og fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverft fólk. Samtökin byggja stefnu sína og starfsemi á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum, sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að framfylgja, sem og á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.
Samtökin taka heils hugar undir umsagnir ÖBÍ réttindasamtaka og UngÖBÍ, ungliðahreyfingu ÖBÍ réttindasamtaka um áformin, sem hér eru til umsagnar og vilja á þessu stigi koma eftirfarandi á framfæri við mennta- og barnamálaráðuneytið en áskilja sér rétt til áframhaldandi náins og virks samráðs við mennta- og barnamálaráðuneytið við mótun ungmennastefnunnar.
Íslenska ríkið fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Samningurinn hefur nú verið lögfestur, sbr. lög nr. 80/2025 og þá er í gangi af hálfu ríkisins sérstök landsáætlun um innleiðingu hans.
4. gr. samningsins hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingar. Þar segir:
1. Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að efla og tryggja að fullu öll mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk án mismununar af nokkru tagi á grundvelli fötlunar.
Aðildarríkin skuldbinda sig í þessu skyni til:
a) að samþykkja alla viðeigandi löggjöf og ráðstafanir á sviði stjórnsýslu og aðrar ráðstafanir til að tryggja þau réttindi sem viðurkennd eru með samningi þessum,
b) að gera allar viðeigandi ráðstafanir, þar á meðal með lagasetningu, til þess að gildandi lögum, reglum, venjum og starfsháttum, sem fela í sér mismunun gagnvart fötluðu fólki, verði breytt eða þau afnumin,
c) að taka mið af vernd og framgangi mannréttinda fatlaðs fólks við alla stefnumótun og áætlanagerð, ...
Í samningnum er ýmis ákvæði, sem hafa mikla þýðingu m.t.t. þess máls, sem hér er til umsagnar, m.a. og ekki síst í 5. gr. (Jafnrétti og bann við mismunun), 7. gr. (Fötluð börn), 9. gr. (Aðgengi), 12. gr. (Jöfn viðurkenning fyrir lögum), 16. gr. (Frelsi frá misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingum), 19. gr. (Að lifa sjálfstæðu lífi og án aðgreiningar í samfélaginu), 20. gr. (Ferlimál einstaklinga), 21. gr. (Tjáningar- og skoðanafrelsi og aðgangur að upplýsingum), 23. gr. (Virðing fyrir heimili og fjölskyldu), 24. gr. (Menntun), 25. gr. (Heilbrigði), 27. gr. (Vinna og starf), 28. gr. (Viðunandi lífskjör og félagsleg vernd), 29. gr. (Þátttaka í stjórnmálum og opinberu lífi)og 30. gr.(Þátttaka í menningarlífi, tómstunda-, frístunda- og íþróttastarfi).
Með vísan til þess sem að framan er rakið vilja Landssamtökin Þroskahjálp sérstaklega árétta þá mikilvægu og skýru skyldu sem hvílir á mennta- og barnamálaráðuneytinu, samkvæmt samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks, sbr. lög nr. 80/2025, að tryggja að við undirbúning, gerð og framfylgd þeirrar ungmennastefnu, sem hér er til umsagnar, verði fullt tillit tekið til aðstæðna, þarfa og réttinda fatlaðra ungmenna almennt og sérstaklega ungmenna með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og/eða einhverfu. Samningurinn og lögin um hann hafa það meginmarkmið og tilgang að tryggja fötluðu fólki og þ. m. t. fötluðum ungmennum, raunhæf tækifæri til jafns við aðra til sjálfstæðs lífs og til virkrar þátttöku á öllum sviðum samfélagsins, án mismununar eða aðgreiningar.
Landssamtökin Þroskahjálp lýsa miklum vilja til virks og náins samráðs við mennta- og barnamálaráðuneytið við það mikilvæga verkefni og vísa í því sambandi til 3. mgr. 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, sbr. lög nr. 80/2025, þar sem segir:
Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.
Virðingarfyllst.
Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar
Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar
Katarzyna Beata Kubiś, verkefnastjóri í málefnum fatlaðra barna og fólks af erlendum uppruna
Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér