Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007
10. ágúst 2026
Landssamtökin Þroskahjálp eru heildarsamtök fatlaðs fólks, sem vinna sérstaklega að réttinda- og hagsmunamálum fólks með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverfs fólks og allra fatlaðra barna og aðstandenda þeirra. Samtökin byggja stefnu sína og starfsemi á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að framfylgja, sem og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.
Landssamtökin þroskahjálp minna félags- og húsnæðismálráðherra og ráðuneytið á að mjög margir skjólstæðingar Þroskahjálpar hafa afar litla eða enga möguleika til að drýgja tekjur sínar með þátttöku á vinnumarkaði vegna fötlunar og/eða ósveigjanlegra krafna á vinnumarkaði og skorts á viðeigandi aðlögun og úrræðum í þágu fatlaðs fólks. Þessi hópur þarf því að láta örorkubætur duga fyrir allri sinni framfærslu, oft alla ævi og býr við kröpp kjör. Í þessu sambandi vilja samtökin einnig minna ráðherra og ráðuneytið á skyldur ríkisins samkvæmt samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks sem í slenska ríkið fullgilti samninginn árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Samningurinn var lögfestur í desember sl., með lögum nr. 80/2025 og þá er í gangi af hálfu ríkisins sérstök landsáætlun um innleiðingu hans.
28. gr. samningsins, sbr. lög nr. 80/2025, hefur yfirskriftina Viðunandi lífskjör og félagsleg vernd. Þar segir m.a.:
1. Aðildarríkin viðurkenna rétt fatlaðs fólks og fjölskyldna þess til viðunandi lífskjara, þar á meðal viðunandi fæðis, klæða og húsnæðis, og til sífellt batnandi lífsskilyrða og skulu gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja og stuðla að því að þessi réttur verði að veruleika án mismununar á grundvelli fötlunar.
2. Aðildarríkin viðurkenna rétt fatlaðs fólks til félagslegrar verndar og til þess að njóta þess réttar án mismununar á grundvelli fötlunar og skulu gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja og stuðla að því að þessi réttur verði að veruleika, þar á meðal ráðstafanir: …
c) til þess að tryggja fötluðu fólki og fjölskyldum þess, sem lifa í fátækt, aðgang að aðstoð frá hinu opinbera til þess að standa straum af útgjöldum vegna fötlunar, þar á meðal útgjöldum vegna viðeigandi þjálfunar, ráðgjafar, fjárhagslegrar aðstoðar og hvíldarumönnunar,
d) til þess að tryggja fötluðu fólki aðgang að húsnæðiskerfi á vegum hins opinbera,
e) til þess að tryggja fötluðu fólki jafnan aðgang á við aðra að eftirlaunum og eftirlaunakerfum.
27. gr. samningsins, sbr. lög nr. 80/2025,hefur yfirskriftina Vinna og starf. Þar segir m.a.:
1. Aðildarríkin viðurkenna rétt fatlaðs fólks, til jafns við aðra, til vinnu; í því felst réttur til að fá tækifæri til að afla sér lífsviðurværis með vinnu að eigin vali eða samþykki á vinnumarkaði og í vinnuumhverfi sem fötluðu fólki stendur opið, er án aðgreiningar og er því aðgengilegt. ...
e) að efla atvinnutækifæri og þróun starfsframa fyrir fatlað fólk á vinnumarkaði, ásamt því að auka aðstoð við að finna, öðlast og halda starfi og snúa aftur á vinnumarkað, ...
f) að fjölga tækifærum til að starfa sjálfstætt, stunda frumkvöðlastarfsemi, þróa samvinnufélög og stofna eigin fyrirtæki,
g) að ráða fatlað fólk til starfa innan opinbera geirans,
h) að stuðla að því að fatlað fólk verði ráðið til starfa innan einkageirans með viðeigandi stefnu og ráðstöfunum sem geta falist í áætlunum um sértækar aðgerðir, hvatningu og öðrum aðgerðum,
i) að tryggja að fatlað fólk fái viðeigandi aðlögun á vinnustað,
j) að efla möguleika fatlaðs fólks til að afla sér starfsreynslu á almennum vinnumarkaði, ...
Landssamtökin þroskahjálp fagna þeim áformum um lagasetningu, sem hér eru til umsagnar en þau telja að skilyrði, sem leiðir til mismununar gagnvart lífeyrisþegum, sem hafa lögheimili erlendis sé óréttlátt og byggist ekki á nægilegum málefnalegum rökum og skora því á félags- húsnæðismálaráðherra að falla frá því skilyrði.
Virðingarfyllst.
Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Landssamtakanna Þroskahjálapr
Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar
Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér