Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áform um frumvarp til laga um brottfall á lögum nr, 42/2007, um Heyrnar- og talmeinastöð

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áform um frumvarp til laga um brottfall á lögum nr, 42/2007, um Heyrnar- og talmeinastöð

 

 

             10. júní 2025

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir, einhverft fólk og fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur undirgengist, sem og á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.

Landssamtökin Þroskahjálp taka heils hugar undir umsögn ÖBÍ réttindasamtaka um áformin, dags. 10. júní 2025 og hvetja heilbrigðisráðuneytið einnig eindregið til að fara gaumgæfilega yfir þær áhyggjur og ábendingar sem fram koma í umsögnum fagaðila um áformin í samráðsgátt

 

Virðingarfyllst.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar

 

Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér