Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áform um endurskoðun sveitarstjórnarlaga
13. júní 2025
Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir, einhverft fólk og fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur undirgengist, sem og á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.
Íslenska ríkið fullgilti samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að samningurinn verði lögfestur og frumvarp um lögfestingu samningsins er nú til meðferðar á Alþingi og þá er í gangi af hálfu ríkisins sérstök landsáætlun um innleiðingu hans.
Sveitarfélög gegna mjög mikilvægu hlutverki samkvæmt lögum við að veita fötluðu fólki þjónustu, sem er mjög oft algjör forsenda þess að það hafi raunhæf tækifæri til að njóta margvíslegra mannréttinda, sem eru sérstaklega áréttuð í samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks.
Í 1. gr. laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og laga nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum, segir:
Við framkvæmd laga þessara skal framfylgt þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem íslensk stjórnvöld hafa gengist undir, einkum samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Framkvæmd þessara tveggja laga er langmest á verksviði og ábyrgð sveitarfélaga. Þá eru grunnskólar og leikskólar reknir af sveitarfélögunum en þeir gegna lykilhlutverki hvað varðar tækifæri fatlaðra barna til menntunar og félagslegrar þátttöku, án mismununar og aðgreiningar, eins og mælt er fyrir um í lögum og er meginþáttur í samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks.
Þroskahjálp vill í þessu sambandi árétta þær miklu efasemdir sem samtökin hafa um að rétt hafi verið falla frá kröfu í lögum um lágmarksfjölda fólks á hverju þjónustusvæði fyrir fatlað fólk, eins og gert var með lögum nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Í þessu sambandi benda samtökin á að mjög vandséð er að fámenn sveitarfélög hafi burði og aðstæður til að bjóða upp á margbreytilega og stundum mjög sérhæfða þjónustu, sem þeim ber að gera samkvæmt lögunum.
Þá er fullt tilefni til að hafa af því áhyggjur að það sé erfitt fyrir fámenn sveitarfélög að hafa starfsfólk í þjónustu sinni sem býr yfir fullnægjandi og sérhæfðri menntun og þekkingu sem nauðsynleg er og krafa er gerð um í lögum og reglum varðandi mannréttindi fatlaðs fólks og þjónustu sem það á rétt á og þarf að fá til að hafa raunhæf tækifæri til að njóta þeirra mannréttinda, til jafns við aðra íbúa sveitarfélaga.
Með því að falla frá kröfu í lögum um þjónustusvæði með lágmarksfjölda íbúa varð einnig enn örðugra fyrir ríkið að standa við þá lagalegu skyldu sína að tryggja jafnræði og samræmi milli búsetusvæða fatlaðs fólks hvað varðar aðgang að lögbundinni þjónustu. Það er mjög brýnt viðfangsefni, sem verður enn þá erfiðara viðfangs með fleiri „þjónustueiningum“. Það er alvarlegt brot gegn jafnræðisreglum laga og mannréttindasamningum ef íbúum landsins er mismunað á grundvelli búsetu hvað varðar þjónustu, þar sem í húfi eru mjög miklir hagsmunir og réttindi þeirra sem í hlut eiga og mjög oft er lögbundin þjónusta við fatlað fólk forsenda þess að þeir sem á henni þurfa að halda fái notið mikilsverðra mannréttinda í skilningi laga, samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks og annarra fjölþjóðlegra mannréttindasamninga sem íslenska ríkið hefur undirgengist.
Í þessu sambandi verður einnig að líta til þess að ósamræmi og/eða ójafnræði á milli búsetusvæða að þessu leyti vegur einnig mjög alvarlega að tækifærum fatlaðs fólks og oft aðstandenda þess líka, einkum þegar um fötluð börn er að ræða, til að ráða búsetu sinni og hafa í raun frelsi til að flytjast eða flytjast ekki á milli sveitarfélaga eða landsvæða. Eðli máls samkvæmt er þannig mest vegið að rétti þeirra til að ráða búsetu sinni, sem hafa miklar þjónustuþarfir vegna fötlunar sinnar og eru því mest háðir þjónustunni. Rétturinn til að ráða búsetu sinni er mannréttindi í skilningi stjórnarskrár og mannréttindasamninga, sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að framfylgja. Eftir því sem „þjónustueiningarnar“ verða fleiri eykst hætta á ósamræmi milli þeirra eðli máls samkvæmt.
Að mati Þroskahjálpar skortir mikið á að ríkið hafi fullnægjandi eftirlit með að fatlað fólk njóti í raun þeirrar þjónustu og stuðnings í öllum sveitarfélögum, sem það þarf á að halda og á rétt á samkvæmt lögum og fjölþjóðlegum mannréttindasamningum, sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að framfylgja og þá skortir mjög virk lagaleg úrræði til að bregðast við þegar fyrir liggur að sveitarfélög uppfylla ekki laglegar skyldur sínar hvað varaðar þjónustu og stuðning við fatlað fólk.
Þá vilja Landssamtökin Þroskahjálp enn og aftur ítreka áskorun sína til ríkis og sveitarfélaga um að leiða án tafar til lykta langvarandi togstreitu sína varðandi kostnað af að tryggja fötluðu fólki mannréttindi og tækifæri til sjálfstæðs lífs og þátttöku í samfélaginu, sem kveðið er á um í stjórnarskrá, lögum og fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem Ísland hefur undigengist og þykja sjálfsögð þegar í hlut eiga aðrir íbúar í landinu og í sveitarfélögunum. Þessi langvarandi togstreita hefur verið og er mjög mikil og alvarleg hindrun í framkvæmd og framþróun þjónustu við fatlað fólk og sífelld opinber umræða henni tengd er mjög oft meiðandi og niðurlægjandi fyrir allt fatlað fólk og vegur að sjálfsmynd þess og ímynd og ýtir undir fordóma gagnvart fötluðu fólki og stuðlar að aukinni aðgreiningu þess.
Landssamtökin Þroskahjálp beina eindregnum tilmælum til innviðaráðuneytisins að taka fullt tillit til þeirra atriða, sem rakin eru hér að framan við endurskoðun sveitarstjórnarlaga og lýsa miklum vilja til samráðs við ráðuneytið við það mikilvæga verkefni. Samtökin vísa í því sambandi til 3. mgr. 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, sem hljóðar svo:
Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.
Virðingarfyllst.
Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar
Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar
Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér