Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um aðgengi að vefsetrum og smáforritum opinberra aðila

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um aðgengi að vefsetrum og smáforritum opinberra aðila

 

26. september 2025

 

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverft fólk og fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína og starfsemi á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að framfylgja, sem og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.

Landssamtökin Þroskahjálp fagna þeim áformum sem hér eru til umsagnar en samtökin vilja nota þetta tækifæri til að minna fjármála- og efnahagsráðuneytið á skyldur þess samkvæmt samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks sem íslenska ríkið fullgilti árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Í samningnum eru mörg ákvæði sem hafa verulega þýðingu m.t.t. þeirra mála sem hér eru til umfjöllunar. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að samningurinn verði lögfestur, stjórnarfrumvarp um lögfestingu samningsins var til meðferðar á síðasta þingi og nú hefur félags- og húsnæðismálaráðherra lagt fram á Alþingi frumvarp um lögfestingu hans og þá er í gangi af hálfu ríkisins sérstök landsáætlun um innleiðingu samningsins.

Þá vilja Landssamtökin Þroskahjálp enn og aftur árétta eftirfarandi, sem hlutaðeigandi stjórnvöld hafa hingað til engan veginn brugðist við með viðeigandi og fullnægjandi hætti, í ljósi þeirra mikilsverðu réttinda og hagsmuna sem í húfi eru.

Mjög alvarlegur skortur er á heildrænni stefnumótun og regluverki, sem tryggir óhindraða stafræna þátttöku fatlaðs fólks. Stjórnvöldum ber að tryggja aðgang alls fólks í samfélaginu að upplýsingum og þjónustu sem og tæknilegt öryggi. Mikilvægt er að stjórnvöld móti stefnu og regluverk og beini því til einkaaðila sem sjá um hönnun, útfærslu og framkvæmd stafrænna lausna að taka mið að því að tryggja aðgengi fyrir alla.  Auk þess að hindra aðgengi að þjónustu og upplýsingum hefur skortur á heildrænni stefnumótun og regluverki í för með sér mjög aukna hættu á jaðarsetningu og einangrun. Stór hluti fatlaðs fólks fær ekki rafræn skilríki og getur þar af leiðandi ekki nýtt sér ýmsa mikilvæga opinbera þjónustu, sem almenningur hefur aðgang að. Sama á við um margs konar þjónustu sem veitt er af einkaaðilum, þar sem rafræn skilríki eru einnig hliðið að alls kyns tækifærum og skemmtunum sem fatlað fólk á að hafa frjálsan og fullan aðgang að, líkt og annað fólk í samfélaginu. Hér er um mjög mikla og ólöglega mismunun á grundvelli fötlunar að ræða og alvarlegt brot á mannréttindum, sem eru vernduð samkvæmt fjölþjóðlegum samningum sem íslenska ríkið hefur undirgengist og áréttuð eru sérstaklega í samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks. Þessi mismunun og mannréttindabrot hefur viðgengist allt of lengi í íslensku samfélagi og ríkið hefur alvarlega brugðist þeim skyldum sínum að gera viðeigandi og fullnægjandi ráðstafanir vegna þessa. Til að tryggja að kröfum um stafrænt aðgengi verði framfylgt verður ríkisstjórnin m.a. að ákveða og upplýsa um hvaða aðili innan stjórnsýslunnar skuli vera ábyrgur fyrir innleiðingu þess. Til þessa liggur ekki fyrir hver ber þá ábyrgð.

Landssamtökin Þroskahjálp óska jafnframt því eftir að fá sæti við borðið í nánara samráði varðandi umrætt mál, ásamt öðrum hagsmunasamtökum fatlaðs fólks, með það að markmiði að tryggja fullt aðgengi fatlaðs fólks að tæknilausnum og upplýsingum.

Landssamtökin Þroskahjálp áskilja sér rétt til að koma frekari ábendingum og athugasemdum varðandi þau mál sem hér til umsagnar á síðari stigum og vísa í því sambandi til 3. mgr. 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, þar sem segir:

Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.

 

 Virðingarfyllst.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar

 

Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér