Á hverju ári sendir Tryggingastofnun upplýsingar til fólks
um peninginn sem fólk hefur fengið frá TR.
TR sendir þessar upplýsingar á hverju ári.
Sumt fólk þarf að borga TR pening til baka.
Það kallast að vera í skuld við TR.
Sumt fólk er ekki sammála því að þau skuldi TR pening.
Þau vilja að TR skoði þetta betur.
Til að hjálpa fólki að borga eða breyta
gerði TR leiðbeiningar í mynd-böndum.
Þetta eru tvö myndbönd.
Fyrst er myndband fyrir fólk sem vill
til dæmis skipta skuldinni í margar litlar.
Það getur verið þægilegra að borga minna í einu.
Þegar við skiptum einni stórri skuld í margar minni
köllum við það greiðslu-dreifingu.
Þetta myndband er um hvernig við getum
gert greiðslu-dreifingu
Svo kemur myndband fyrir fólk
sem er ekki sammála því að þau skuldi TR pening.
Þau vilja að TR skoði þetta betur.
Þetta er myndband um hvernig við látum TR vita
að þau eigi að skoða þetta betur