Strætó kennir á Klapp

Sumt fatlað fólk hefur lent í vandræðum með nýtt greiðslu-kerfi Strætó sem heitir Klapp.

Vegna þess ætla starfsmenn Strætó koma til Ás Styrktarfélags og Þroskahjálp 7. og 8. desember til að kenna á Klapp og hjálpa fólki að kaupa fargjöld.

Á þriðjudaginn 7. desember milli kl. 1 – 3 eftir hádegi mun starfsfólk frá Strætó koma í heimsókn til Ás Styrktarfélags í Ögurhvarfi 6.

Á miðvikudaginn 8. desember milli kl. 1 – 3 eftir hádegi mun starfsfólk frá Strætó koma í heimsókn til Þroskahjálpar á Háaleitisbraut 13 á 3. hæð.

Við vonumst til að sjá sem flesta!