Starfsnemar hjá Þroskahjálp!

Í vikunni hófu þær Eyrún og Dalrós starfsnám á skrifstofu Þroskahjálpar og munu ljá okkur krafta sína næstu vikurnar. 
 
Eyrún og Dalrós eru á lokaári í diplómanámi í Háskóla Íslands með áherslu á fötlunarfræði og réttindabaráttu. Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar og hlökkum til samstarfsins.