Nýjar reglur vegna COVID, 24. febrúar

Nýjar COVID reglur sem gilda frá 24. febrúar:

  • Fáir eru smitaðir af COVID á Íslandi.
  • Enginn hefur smitast af COVID síðan 1. febrúar sem ekki var í sóttkví.
  • Þess vegna er hægt að slaka ennþá meira á reglum í samfélaginu.
  • Við þurfum öll að hjálpast að og gæta okkar.
  • Það mega ekki fleiri en 50 manns hittast. Það gildir ekki um börn fædd árið 2005 og yngri. 
  • Við þurfum að hafa 2 metra fjarlægð á milli okkar og annarra. Ef við getum það ekki þarf að vera með grímu.
  • Börn fædd árið 2005 og yngri þurfa ekki að vera með grímu.
  • Ef þú hefur fengið COVID-19 eða getur ekki verið með grímu vegna heilsu eða fötlunar þarftu þess ekki. En allir sem geta eiga að vera með grímu.

Söfn og búðir

  • 2 metrar á milli fólks og þú þarft að vera með grímu.
  • 200 manns mega vera á sama stað.

Viðburðir og skemmtun

  • 200 gestir mega vera á viðburðum, til dæmis við jarðarfarir, leikhússýningar og fleiri stöðum þar sem fólk situr.
  • Það má vera 1 metri á milli fólks sem er ekki tengt hvoru öðru.
  • Ef fólk sem er ekki tengt situr á móti hvoru öðru, þá eiga að vera 2 metrar á milli fólksins.
  • Þú þarft að vera með grímu.
  • Veitingastaðir sem selja áfengi mega hafa 50 gesti. Það þurfa allir að vera farnir klukkan 11 um kvöld.

Íþróttir og líkamsrækt

  • Það mega ekki vera fleiri en 50 manns í hverju rými.
  • Það má fara í heilsurækt, líkamsrækt, í sund og á skíði.
  • Það mega vera 200 áhorfendur á íþrótta-keppnum ef fólk situr. Ef áhorfendur standa mega bara vera 50 manns.

Sjá frétt stjórnvalda