Námskeið um persónulega talsmenn

Hefur þú áhuga á að gerast persónulegur talsmaður fyrir fatlaðan einstakling? 

Námskeið verða haldin í Reykjavík laugardaginn 26. september og á Akureyri laugardaginn 10. október.

Hafir þú áhuga á að sækja námskeiðið er bent á að hafa samband við réttindagæslumann á sínu svæði, sjá www.rettindagaesla.is

Þau sem telja þörf á samningi um persónulegan talsmann fyrir þann tíma er einnig bent á að hafa samband við réttindagæslumann.

 

Hér má lesa um persónulega talsmenn á síðu Gæða- og eftirlitsstofnunar.

Hér má lesa lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, þar sem fjallað er um persónulega talsmenn.