Ljósmynd: Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg hefur sent frá sér upplýsingar um aðgengi á Menningarnótt:
Á Menningarnótt verður hluti miðborgarinnar lokaður allri bílaumferð til tryggja öryggi gangandi vegfarenda, og verða engar undantekningar gerðar á því.
Hjólastólapallar verða fyrir framan sviðið á tónleikunum í Hljómskálagarði og á Arnarhóli til að tryggja aðgengi allra á tónleikunum.
Bílastæði fyrir fatlað fólk
Bílastæði fyrir fatlað fólk eru staðsett á eftirfarandi stöðum:
- Fyrir framan Skúlagötu 6, sérstakt svæði sem eingöngu verður nýtt undir bílastæði fyrir P merkta bíla.
- Við Tækniskólann, hluti stæðanna verður nýttur undir P merkt stæði.
- Í eftirfarandi bílastæðahúsum eru sérmerkt bílastæði fyrir fatlað fólk
- Bílakjallari Ráðhúss Reykjavíkur, frá klukkan 07:00 – 11:00 og 16:00 – 00:00. Athugið að ekki verður hægt að nota lyftu ráðhúss til að komast í bílakjallarann eftir kl. 18.00.
- Vesturgötu 7, frá kl. 07.00 – 00.00.
- Vitatorgi, Lindargötu (aðgengi frá Hverfisgötu)
- Stjörnuporti, Laugavegi 94, klukkan 07:00 – 00:00.
- Hörpu, frá klukkan 13:00 – 21.00 (hægt er að yfirgefa bílakjallarann eftir kl. 21.00)
Kort af götulokunum og þjónustu við fatlað fólk á Menningarnótt 2026
Skynrými
Skynrými fyrir fólk með skynúrvinnsluvanda verður staðsett í safnaðarheimili Fríkirkjunnar í Reykjavík við Laufásveg 13. Skynrýmið verður opið frá klukkan 15:00 til 20:00.
Pant akstursþjónusta fatlaðs fólks
Hægt er að panta akstur á vefnum eða í síma 540 2727.
Panta akstur
Akstur er frá klukkan 07:30–01:00
Seinasta ferð er klukkan 00:45.
- Almennur opnunartími á laugardögum er klukkan 10:00–14:00.
- Fyrir klukkan 10:00 og eftir klukkan 14:00 er aðeins hægt að panta stakar ferðir, afpanta ferðir og fá svör við brýnum erindum.
- Hægt er að bóka ferð með tveggja tíma fyrirvara á Menningarnótt eins og vani er.
- Farþegar eru vinsamlegast beðnir um að bóka ferðir með fyrirvara til að auðvelda skipulagningu akstursins.
Akstursþjónustan stöðvar á eftirfarandi stöðum til þess að skila af sér og taka á móti farþegum:
- Skólavörðuholti – bílastæði við Hallgrímskirkju
- Við BSÍ
- Sjávarútvegsráðuneyti – bílastæði á Skúlagötu 4
- EKKI er stöðvað við Ráðhúsið
Viðbúið er að einhver seinkun kunni að verða sökum umferðar. Farþegar eru beðnir um að sýna þolinmæði og skilning gagnvart því.
Salernisaðstaða
Salerni fyrir fatlað fólk eru staðsett á eftirfarandi stöðum:
- Við Arnarhól (til hliðar við bílastæðahús Seðlabankans)
- Ingólfsstræti, við Arnarhól
- Í Hljómskálagarði
- Á bílastæði við Tækniskólann
- Hverfisgötu 23 (við Lýðveldisgarð)
- Í Ráðhúsinu – opið til klukkan 18:00
- Í Hörpu – opið til klukkan 22:00
- Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi – opið til klukkan 22:00
Almenningssamgöngur
Strætó mun aka á Menningarnótt úr öllum hverfum borgarinnar, fólk er vinsamlegast beðið um að kynna sér áætlun strætó á menningarnótt.
Áætlun strætó á Menningarnótt
Eftir klukkan 21.30 verður leiðarkerfið rofið og öllum vögnum beint á Sæbraut við Sólfarið. Ekið verður í öll hverfi á Höfuðborgarsvæðinu. Frítt er í Strætó á meðan á tæmingu miðborgarinnar stendur eða frá klukkan 22.00 til 23.00.
Allir vagnar Strætó á höfuðborgarsvæðinu eru aðgengilegir fólki í hjólastólum.
Áætlunarferðir á leiðum 50 til Akraness, 51 til Selfoss og 55 til Keflavíkur munu fara frá biðstöðinni Skúlagötu kl. 22:40 samkvæmt gjaldskrá.