Í hvaða flokki er barnið þitt?

Unnur Helga, formaður Þroskahjálpar
Unnur Helga, formaður Þroskahjálpar

Greinin birtist fyrst á Vísi þann 1. mars 2022.

Enn og aftur er verið að ræða um skóla án aðgreiningar í þjóðfélaginu. Hjálmar Waag Árnason skrifaði eftirfarandi grein þann 23. febrúar Gjald­þrota skóla­stefna og of­beldi - Vísir (visir.is)

Í grein Hjálmars kemur fram að skóli án aðgreiningar sé gjaldþrota skólastefna, þar líðist ofbeldi gegn börnum og kennurum, og að kerfið sé ekki að virka. Hann líkir skólastarfinu við vígvöll þar sem verkefnin eru of krefjandi fyrir skólafólk, að of margir nemendur með sérþarfir taki mikla orku úr kennaranum og að ,,venjulegir nemendur’’ missi þ.a.l. af rétti sínum við að fá kennslu við hæfi.

Nú skulum við staldar aðeins við. Hvaða nemendur eru með sérþarfir? Öll höfum við jú okkar þarfir og þörf á stuðningi við ýmislegt.

Er Hjálmar t.d. að tala um nemendur með:

  • ADHD
  • Kvíða
  • Skólaforðun
  • Félags- eða tilfinningavanda
  • Þroskahömlun
  • Skerta hreyfifærni eða líkamlega fötlun
  • Hegðunarraskanir
  • Einhverfu
  • Fíknivanda
  • Félagslegan vanda
  • Annað tungumál en íslensku
  • Lesblindu
  • Málþroskaröskun
  • Bráðgera nemendur

Þessi upptalning er klárlega ekki endanleg en ég læt hér við sitja.

Upptalningin hér að ofan er þverskurður þjóðfélagsins. Við sem samfélag tökum tillit til mismunandi þarfa í daglegu lífi og ætlumst einnig til þess að aðrir taki tillit til okkar.

Í grein Hjálmars telur hann ekki forsvaranlegt fyrir sveitarfélögin að fækka í bekkjardeildum eða bæta við aðstoðina heldur að skynsamlegasta leiðin sé að játa okkur sigruð og snúa okkur aftur til flokkunar þar sem einstaklingar eru meira meðal jafningja og horfa meira til þroska og færni. Það væri fróðlegt að sjá hvernig Hjálmar sér fyrir sér þessa flokkun.

Grunar mig að Hjálmar sé með þessum skrifum að meina að við ættum að taka aftur upp sérskóla fyrir nemendur með einhverskonar fötlun, einhverfu eða skyldar raskanir. Þessir nemendur eru ekki byrði á skólastarfinu í dag og ósanngjarnt finnst mér að umræðan sé beint að þessum hópi.

Í dag snýst skóli án aðgreiningar um tækifæri allra barna. Þau hafa jafnan rétt til menntunar án aðgreiningar, sem er ekki aðeins skýrt og skilmerkilega tryggt í íslenskum lögum heldur einnig sérstaklega áréttaður í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem íslenska ríkið ber að fara eftir.

Kennarastarfið getur verið skemmtilegasta starf í heimi þrátt fyrir að áskoranirnar séu miklar og skrefin oft mörg og löng til árangurs en þá verður yfirleitt sigurinn sætari. Til að efla starf skólafólks er mikilvægt að auka til muna þverfaglega samvinnu þar sem fjölbreyttur hópur fagaðila vinna saman að málefnum nemenda, eins og þroskaþjálfa, sérkennara, iðjuþjálfa, sálfræðinga, námsráðgjafa, talmeinafræðinga og kennara. Það er einfalda svarið.

Hættum svo að tala um skóla án aðgreingar sem vandamál. Tölum stefnuna upp, hjálpum skólafólki til þess að takast á við verkefnið sem við sem þjóðfélag berum ábyrgð á. Við viljum sjá í framtíðinni þjóðfélagsþegna sem hafa öðlast skilning og innsýn fyrir fjölbreytileikanum og sýni náunganum skilning og kærleika en ekki útskúfun og hindranir.

Höfundur er formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar og sérkennari.