Diplómanám í fötlunarfræði við HÍ

Opið er fyrir umsóknir í diplómanám í fötlunarfræði til og með 30. nóvember 2020.

Fötlunarfræði skoðar líf og aðstæður fatlaðs fólks út frá félagslegum skilningi og mannréttindanálgun með áherslu á þætti sem skapa og viðhalda fötlun og hindra þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu. Námið er þverfaglegt og bæði kennarar og nemendur eru með fjölbreyttan bakgrunn. Sterk tengsl eru við innlendar og alþjóðlegar rannsóknir á sviði fötlunarfræði.

Margvísleg tækifæri eru að loknu námi.
Fötlunarfræði býður upp á fjarnám sem margir nemendur hafa nýtt sér með góðum árangri.

Frekari kynning á diplómanámi í fötlunarfræði er á Youtube: https://youtu.be/s9dYF5hyZQQ

Nánari upplýsingar veita Stefan C. Hardonk formaður námsbrautar (hardonk@hi.is) og Ásdís Magnúsdóttir verkefnastjóri á skrifstofu Félagsfræði-, mannfræði og þjóðfræðideildar Háskóla Íslands.