Daðahús: opið fyrir sumarúthlutanir

Nú er búið að opna fyrir umsóknir fyrir sumarleigu á Daðahúsi á Flúðum. Umsóknir eru fylltar út á heimasíðu okkar og þurfa að berast fyrir 4. apríl n.k. 

Húsið er leigt út viku í senn yfir tímabilið, frá 29. apríl til 4. nóvember.  Á þeim tíma nýtur fatlað fólk og aðstandendur þeirra forgangs. 

Húsið er leigt frá föstudegi kl. 15:00 til næsta föstudags kl. 12:00. 

Verð fyrir vikuleigu er kr. 40.000. 

Mikil ásókn er í Daðahús og því verður meðal annars tekið tillit til þess við úthlutun, hvort einstaklingar hafa á undaförnum árum fengið úthlutað vikuleigu. 

Ráðgert er að svara umsækjendum um hvort hægt sé að verða við óskum þeirra eigi síðar en 14. apríl n.k. 

Athugið að Daðahús er heilsárshús og því tilvalið að sækja um leigu að vetri til.  Leiga utan háannatímans er öllum opin, bæði helgar og vikur.