Almanak 2022 komið í Pennan-Eymundsson

Almanak Landssamtakanna Þroskahjálpar fyrir árið 2022 er komið í verslanir Pennans-Eymundssonar. Samtökin reiða sig nær alfarið á frjáls framlög og er almanakssala samtakanna stór þáttur í þeirri söfnun. 

Smelltu hér til að kaupa almanakið í vefverslun Þroskahjálpar.

Með kaupum á almanakinu hjálpar þú okkur að vinna að réttindum, tækifærum og hagsmunum fatlaðs fólks. Hvert almanak er einnig happdrættismiði,  þar sem listaverk og eftirprentanir eftir marga af ástsælustu listamönnum þjóðarinnar eru í vinning.

Í ár eru það kraftmikil verk Kristínar Gunnlaugsdóttur, sem prýða almanakið en hún hefur vakið verðskuldaða athygli innanlands og utan.