Auðlesnar fréttir á RÚV

Merki RÚV.
Merki RÚV.

RÚV hefur ráðið starfsmann til að skrifa auðlesnar fréttir.

Þetta er mikilvægt mannréttindamál því allir eiga rétt á að fá upplýsingar á máli sem þau skilja.

Þroskahjálp hefur lengi barist fyrir því að RÚV geri fréttir á auðlesnu máli. Við erum mjög glöð að það eigi að leggja mikla áherslu á fréttir á auðlesnu máli.

Þú getur skoðað auðlesnar fréttir á www.ruv.is/audskilid