4. júní er Alþjóðadagur hjálpartækni

Frá viðburði sem systursamtök okkar í Malaví, FEDOMA stóðu fyrir í Mangochi.
Frá viðburði sem systursamtök okkar í Malaví, FEDOMA stóðu fyrir í Mangochi.

4. júní er Alþjóðadagur hjálpartækni — dagur sem minnir okkur á mikilvægi þess að allir hafi aðgang að þeirri tækni sem getur auðveldað daglegt líf, aukið sjálfstæði og opnað nýja heima. Þroskahjálp vinnur að sérstæðu verkefni sem leggur áherslu á að öll tækni, og sérstaklega aðstoðartækni, sé hönnuð með aðgengi og mannréttindi að leiðarljósi. Rétt hönnuð hjálpartækni getur skipt sköpum fyrir fatlað fólk.

Markmið dagsins er að:

  • Koma fræðslu á framfæri um nýjungar og lausnir í hjálpartækni.

  • Efla aðgengi og notkun á tækninni  fyrir alla sem þurfa á henni að halda.

  • Hvetja stjórnvöld og samfélagið til að fjárfesta í hjálpartækni.

  • Veita fólki rödd sem nýtir sér slíka tækni og sýna fram á áhrif hennar á lífsgæði og sjálfstæði.

Samherjar okkar í mannréttindabaráttu fatlaðs fólks í Malaví vöktu einmitt athygli á þessum mikilvæga degi í Mangochi – eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.