Þroskahjálp flytur

Á miðjum aldri er nauðsynlegt að hreyfa sig, og Þroskahjálp sem á stórafmæli í haust ætlar að flytja og halda upp á afmælið á nýjum stað.

Næstu vikur fara í að gera og græja, hlaupa með kassa á milli húsa og koma okkur fyrir.

Skrifstofa Þroskahjálpar verður lokuð þangað til við opnum á nýja staðnum.

Við stefnum á byrjun maí en tilkynnum það sérstaklega þegar nær dregur.

Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þú átt eitthvað erindi við Þroskahjálp.
Næstu vikur verður líklega best að hafa samband gegnum tölvupóst og þar má auðvitað mæla sér mót við einstaka starfsfólk.

Netfang skrifstofu Þroskahjálpar er: throskahjalp@throskahjalp.is, og hér má finna netföng einstakra starfsmanna:

 

Við förum ekki langt, rétt rúmlega 400 metra og erum mjög spennt öll að hitta ykkur á nýja staðnum.