Hér getur þú sótt um sumarleigu á Daðahúsi á Flúðum,
orlofshúsi Þroskahjálpar
Umsóknir þurfa að berast ekki seinna en 10. apríl 2026
Sækja um sumarleigu á Daðahúsi
Verð og tímabil
Sumartímabilið er frá 8. maí til 2. október
Á sumrin er Daðahús leigt í viku í senn, frá föstudegi til föstudags.
Komutími: kl. 15.00 á föstudegi
Brottför: kl. 12.00 á föstudegi
Yfir sumarmánuðina er húsið eingöngu ætlað fötluðu fólki og aðstandendum þeirra.
Verð fyrir viku: 60.000 kr.
Sækja um sumarleigu á Daðahúsi
Um úthlutun á Daðahúsi
Mikil ásókn er í Daðahús, og við hjá Þroskahjálp erum þakklát fyrir fjölda umsókna.
Markmið Þroskahjálpar er að bjóða sem fjölbreyttustum hópi fólks að njóta orlofshússins.
Við úthlutun skoðar Þroskahjálp því hvaða einstaklingar hafa áður fengið úthlutun á undanförnum árum.
Svar við umsóknum
Umsækjendur um sumarúthlutun 2026 eiga von á svari eigi síðar en 17. apríl.
Gott að vita
Daðahús er heilsárshús og því tilvalið að sækja um leigu að vetri til.
Leiga utan háannatímans er öllum opin, bæði helgar og vikur.
Til að leigja Daðahús um vetur:
vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Þroskahjálpar
í síma 588 9390 eða á netfangið dadahus@throskahjalp.is