Viðbótarumönnunargreiðsla vegna COVID-19 faraldursins

Lógó Tryggingarstofnunar ríkisins
Lógó Tryggingarstofnunar ríkisins

Framfærendur barna sem voru með gilt umönnunarmat á tímabilinu 16. mars til 4. maí geta nú sótt um viðbótargreiðslu vegna COVID -19. Um er að ræða eingreiðslu vegna aukinnar umönnunar barns sem  skapast  hefur vegna COVID-19 faraldurs. Upphæð eingreiðslunnar er 48.108 kr.

Skilyrði fyrir greiðslu er að eftirfarandi aðstæður hafi skapast á tímabilinu 16. mars til 4. maí:

  • Þjónusta, t.d.  skóli eða dagvistun hafi legið niðri
  • Barn hafi ekki getað sótt þjónustu vegna ástandsins
  • Undirliggjandi sjúkdómar barns hafi valdið því að það þurfti að vera heima (vandi skilgreindur sem áhættuþáttur af embætti landlæknis fyrir alvarlegri sýkingu vegna COVID-19).

Jafnframt er skilyrði að þessar aðstæður hafi varað í a.m.k. 15 virka daga á framangreindu tímabili.

Hægt er að sækja um greiðslurnar á Mínum síðum hjá Tryggingastofnunar ríkisins til 31.12.2020.