Umsóknarfrestur í meistaranám í fötlunarfræði

Opið er fyrir umsóknir í meistaranám í fötlunarfræði til og með 15. apríl 2022. Umsóknarfrestur fyrir 30 eininga viðbótardiplóma í fötlunarfræði er 5. júní.  

Fötlunarfræði skoðar líf og aðstæður fatlaðs fólks út frá félagslegum skilningi og mannréttindanálgun með áherslu á þætti sem skapa og viðhalda fötlun og hindra þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu. Námið er þverfaglegt og bæði kennarar og nemendur eru með fjölbreyttan bakgrunn. Sterk tengsl eru við innlendar og alþjóðlegar rannsóknir á sviði fötlunarfræði.  

Margvísleg tækifæri eru að loknu námi en út frá fötlunarfræði er t.d. hægt að vinna störf innan mennta- og þjónustukerfisins, í stefnumótun, réttindagæslu og á vettvangi baráttusamtaka fatlaðs fólks. Fatlað fólk er fyrst og fremst fólk og því er fötlunarfræðinám hagnýtt á öllum sviðum samfélagsins, t.d. á sviði mannauðsmála, í viðburðastjórnun, o.fl.  

Fötlunarfræði býður upp á fjarnám sem margir nemendur hafa nýtt sér með góðum árangri.  

Frekari kynning á diplómanámi í fötlunarfræði er að finna á https://www.hi.is/fotlunarfraedi

Umsagnir frá núverandi og fyrrverandi nemendum og samstarfsaðilum: https://youtu.be/Gbi9zPwNIJQ

 Nánari upplýsingar veita Stefan C. Hardonk formaður námsbrautar (hardonk@hi.is) og Ásdís Magnúsdóttir verkefnastjóri á skrifstofu Félagsfræði-, mannfræði og þjóðfræðideildar Háskóla Íslands (am@hi.is).