Þroskahjálp kynnir Flokkahjálp

Flokkahjálp er verkefni sem Þroskahjálp hefur hleypt af stokkunum til að minna á málefni fatlaðs fólks
nú í aðdraganda kosninganna.
 

 
Á vef Flokkahjálpar er m.a. stefnuskrá sem við hvetjum stjórnmálafólk til að stela. Við vonum að sveitastjórnarfólk nýti sér stefnuskránna sem eins konar vegvísi þegar það kemur að því að mynda meirihluta og skrifa sáttmála á komandi vikum.
 

 

Nú geta bæði stjórnmálaflokkar og kjósendur greint hversu inngildandi stefnuskrár framboðana eru

 
  
 skjámynd af vefnum flokkahjálp.is
(skjáskot af greiningatólinu)
 
Inn á flokkahjálp.is er greiningatól en þar má líma inn stefnuskrár og athuga hversu mikil áhersla er lögð á réttindi fatlaðs fólks. 
 
Ekki nóg með það heldur er framboðunum boðið að stela stefnuskrá Flokkahjálpar í málefnum fatlaðs fólks sem einnig er á síðunni.
 
Greiningatólið hleypir vonandi skemmtilegu lífi í kosningabaráttuna og beinir sjónum að þessum mikilvæga málaflokki sem hefur ekki verið áberandi í aðdraganda kosninganna.
 

Við vonum að öll framboðin og kjósendur nýti sér Flokkahjálp og að málefni fatlaðs fólks verði þeim ofarlega í huga, hvort sem er í kjörklefanum eða við samningaborðin.