Stafræn gjá – hugleiðing frá Mennskri ráðgjöf og Þroskahjálp

Á Íslandi notum við tölvuna og símann til að gera mjög marga hluti. Margir eru góðir í því en ekki allir.

Við köllum það stafræna gjá þegar það myndast bil á milli þeirra sem geta notað tækni og þeirra sem geta það ekki.

 -       Sumir geta það ekki vegna þess að þeir búa á stöðum þar sem tengingarnar eru ekki góðar við síma eða internet.

-       Sumir geta ekki notað tækni vegna þess að þeir eru ekki góðir að lesa, fá ekki rafræn skilríki eða það að tæknin sem hefur verið búin til hentar þeim ekki.

-       Og sumir geta ekki notað tækni því að þeir hafa ekki fengið rétta þjálfun í að nota tæknina.

Á Íslandi geta allir sem eiga síma eða tölvu komist á internetið. En sumum er ekki kennt að nota tækin sem við notum á internetinu.

Það þarf að gera meira í því að hjálpa fólki að nota tölvur og internetið.

Nýlega voru sett lög um að það ætti að passa upp á að vefir stofnana og smáforrit væru aðgengileg fyrir alla.

Það þýðir að það á að vera hægt að nota þessa vefi þó maður sé ekki góður á tölvu, líka þó maður noti tölvu með stuðningsforriti eins og skjálesara.

 

Nýlega kom líka út skýrsla um stafræna gjá í nokkrum löndum í Evrópu. Það má lesa hana á slóðinni hér fyrir neðan.

Skýrsla um stafræna gjá á vegum EPSON verkefnisins