Skrifstofa Þroskahjálpar lokuð mánudaginn 7. febrúar

Veðurstofan hefur gefið út rauða veðurviðvörun og Almannavarnir lýst yfir hættustigi vegna illviðrisins og má ætla að samgöngur á höfuðborgarsvæðinu raskist fram eftir degi. Af þessum sökum höfum við ákveðið að hafa skrifstofu okkar á Háaleitisbraut 13 lokaða út mánudaginn.

Svarað verður í síma að venju milli kl. 10 og 14 og skrifstofan okkar opnar aftur þriðjudaginn 8. febrúar kl. 9.

Við hvetjum alla til að fara varlega þarna úti.