Samstarf um nýsköpunarvirkni fatlaðs fólks

Landssamtökin Þroskahjálp, Öryrkjabandalag Íslands, Átak - félag fólks með þroskahömlun, Hlaðvarp um mannréttindi fatlaðs fólks, Samtök frumkvöðla og hugvitsmanna og KVENN, félag kvenna í nýsköpun, hafa hafið samstarf um verkefnið „Nýsköpunarvirkni fatlaðs fólks.“ Verkefnið snýst um að auka möguleika fatlaðs fólks til að starfa við nýsköpun annarsvegar, og hinsvegar efla nýsköpun með þátttöku þessa stóra hóps.

Upphaf verkefnisins má rekja til þess að Stefan Hardonk, lektor í fötlunarfræðum við HÍ, vann rannsóknarverkefni ásamt nemendum sínum, sem leiddi í ljós mikinn áhuga fatlaðs fólks á nýsköpun, bæði þátttöku í nýsköpunarverkefnum en ekki síður að hefja eigin frumkvöðlaverkefni. Í framhaldinu var efnt til þessa samráðs.

Skýrsla um verkefnið hefur nú verið gefin út, og kynnt fyrir þremur ráðherrum, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra; félags- og barnamálaráðherra og forsætisráðherra.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu verkefnisins, nyskopunarvirkni.is þar sem m.a. má finna skýrsluna.