Sameiginleg yfirlýsing til komandi ríkisstjórnar

Landssamtökin Þroskahjálp, Landssamtökin Geðhjálp og Öryrkjabandalag Íslands hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu til formanna flokkanna sem nú eru í ríkisstjórnarviðræðum. Er það ósk samtakanna að lýst verði yfir skýrum vilja í sáttmála ríkisstjórnarinnar um breytingar og endurskoðun á framfærslukerfi almannatrygginga.
 

„Hvatning til komandi ríkisstjórnar
Reykjavík, 6. nóvember 2021

Landssamtökin Þroskahjálp, Landssamtökin Geðhjálp og Öryrkjabandalag Íslands hvetja komandi ríkisstjórn Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, til að setja í sáttmála sinn skýran vilja til breytinga og endurskoðunar á framfærslukerfi almannatrygginga.

Það er okkar vilji að allt ferli við endurskoðun kerfisins verði unnið í samráði við hagsmunasamtök fatlaðs fólks og að breytingar á kerfinu auki tækifæri til þátttöku í samfélaginu.

Fjölga þarf störfum og starfsúrvali til að mæta þörfum fólks sem hefur misjafna getu. Hið opinbera sýni gott fordæmi með því að skapa breytt úrval hlutastarfa þar sem viðeigandi aðlögun er viðhöfð og hvetji vinnumarkaðinn til samstarfs.

Markmiðið verði að skapa samfélag þar sem allir hafa tækifæri og enginn er skilinn eftir. Undirrituð lýsa yfir miklum vilja til samstarfs og samráðs um þá vegferð.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar

Héðinn Unnsteinsson, formaður Landssamtakanna Geðhjálpar

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands“