Óskum eftir tilnefningum til Múrbrjótsins

Vinningshafar Múrbrjótsins 2021; Þórir Gunnarsson, Harpa Björnsdóttir og Kristinn Jónasson. Guðmundu…
Vinningshafar Múrbrjótsins 2021; Þórir Gunnarsson, Harpa Björnsdóttir og Kristinn Jónasson. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra afhenti verðlaunin.

AUÐLESIÐ

  • Þroskahjálp velur á hverju ári manneskju, félag eða verkefni sem hefur haft áhrif á réttindi fatlaðs fólks og sýnt samfélaginu að fatlað fólk séu virkir þátttakendur í samfélaginu.
  • Sá sem er valinn fær viðurkenningu sem heitir Múrbrjóturinn.
  • Þekkir þú einhvern sem hefur bætt stöðu fatlaðs fólks eða gefið fötluðu fólki tækifæri til að  lifa eðlilegu lífi eins og aðrir í samfélaginu?
  • Þá getur þú sent okkur skilaboð á throskahjalp@throskahjalp.is í síðasta lagi fimmtudaginn 10. nóvember.
  • Stjórn Þroskahjálpar velur verðlaunahafannog fær sá sem valinn er verðlaun á alþjóðadegi fatlaðs fólks.

Þroskahjálp óskar eftir tilnefningum fyrir Múrbjótinn fyrir árið 2022. Á hverju ári veita Landssamtökin Þroskahjálp viðurkenningu sína, Múrbrjótinn, í tengslum við alþjóðadag fatlaðs fólks 3. desember.

Múrbrjóturinn dregur nafn sitt af því að viðurkenningin er veitt þeim sem að mati samtakanna brjóta niður múra í réttindamálum og viðhorfum til fatlaðs fólks og stuðla þannig að því að það fái tækifæri til að vera fullgildir þátttakendur í samfélaginu og til að lifa eðlilegu lífi til jafns við aðra.

Nú leitum við að tilnefningum ykkar fyrir þau sem hafa verið framúrskarandi á árinu þegar kemur að því að brjóta niður múra. Þú getur sent okkur tölvupóst með nafni viðkomandi og ástæðu tilnefningarinnar. Múrbrjóturinn er veittur til einstaklinga, fyrirtækja, verkefna og stofnana. 

Hægt er að skila inn ábendingum og tilnefningum til Múrbrjótsins á netfangið throskahjalp@throskahjalp.is - tekið verður á móti tilnefningum fram til 8. nóvember.

Stjórn samtakanna velur svo verðlaunahafann og er Múrbrjóturinn svo afhentur í tengslum við alþjóðadag fatlaðs fólks þann 3. desember.

HÉR má sjá lista yfir fyrri verðlaunahafa.